Fróði - 01.05.1913, Side 21

Fróði - 01.05.1913, Side 21
FRÓÐI 277 láta hann ganga þessa götu oft og iðulega. Og ef að menn vilja brjóta gamlan vana, þá er ekkert betra en það, að temja viljann við að gjöra hið gagnstœða. Einn hinn merkasti vfsindamaður, prófessor James frá Har- ward, hefir tekið fram þessar reglur, : em menn skýldu f>'lgja, er menn vilja temjá vilja sinn. I. Viljir þú brjóta einhvern gamlan vana og temja þjer nýjan, þá verður þú að byrja tilraunir þfnar með svo einbeittum ásetningi, sem þjer er mögulegt. Það er um að gjöra að þjer mis- lukkist e)<ki fyrstu tilraunirnar, og hver dagurinn sem lfður, gjörir ])ig sterkari og staðfastari fyrir, þangað tii þú loksins ert búinn að brjóta algjörlega af þjer hinn gamla vana þinn.. II. Næst er það, að lfða ekki nokkrar undantekningar, þvf að þá gjörir þú áform þitt hlægilegt og heimsku eina. Þoldu þvf enga undantekningu fyrri en hinn nýji vani er orðinn þjer svo eðlilegur, að hann er orðinn náttúra þfn. Hvenær sem þú brýtur, er sem þú missir niður hnikil, sem þú ert að vinda á þráð eða garn eitthvert. Og f hvert skifti, sem hnikillinn fellur niður, rakna af honum ótal hringar, svo það tekur þig kannske lengri tfma að vinda upp það, sem raknað hefir, en það tók þig, að \-inda upp alt, sem áður var komið. Það er nærri hvað mest undir þvf kornið, að bíða aldrei ósig- ur, þvf að bfði menn ósigur, þá er þar komið höfuðið á einni vcnjunni — að falla. — En það má ekki eiga sjer stað. Og komi þao oftar fyrir, þá verður þetta alt einn hrakfarabálkur. “Það vill sækja í sama farið”, eins og orðtakið gamla segir. Gott er og að reyna að koma því svo fyrir f fyrstunni, að mönnum veiti Ijett að brjóta þessar gömlu venjur og taka upp nýj- ar. Þetta geta menn oft að meiru eður minna leyti og á marga vegu. En þegar styrkurinn fer að vaxa þurfa menn þess ekki.

x

Fróði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.