Fróði - 01.05.1913, Page 31
FRÓÐI
287
er að verða kaldara og kaldara í ríkjunum meðfram sjónurn, þó að
litlu muni á ári hverju.
Smátt og smátt ælla þeir að garðurinn hækki og þá minki
kaldi straumurinn og snfiist til austurs þar sem dalurinn djCpi tek-
ur við. Þar hljóta svo straumarnir að mætast, cn þar er fleiri
þúsund feta dýpi og þar eiga þeir að mætast. Þá legst kaldi
og salti straumurinn niður að botni, en lieiti straumurinn að sunn-
an liggur olan á og hcldur leið sína norður og tapar margfalt minnu
af hita sfnum. og kemur þvf miklu heitari að ströndum Englands,
írlands, Skotlands, Norvegs. Meðhaldsmenn fyrirtækis þessa
fullyrða, að með þessu móti muni Golfstraumurinn geta brætt ís
allan á sumrum f höfum og löndum á norðurhluta hnattarins. Þ4
verði veturinn mikið styttri og mildari um alla Norðurálfu. Sf-
bería og norðurhluti Canadaveldis verði, þá hin æskilegustu lönd
að búa í. Og um alla Norður-Ameríku verði veturinn mildari og
styttri. — En hva.ð verður um gamla Island? Eða á Grænland
eftir að verða grænt af grösum og skógi og Island að Iosna við
jöklana og haffsinn? Verði svo, eða þó ekki væri annað, en að
haffsinn fengi þann skell, að hann sæist ekki, þá mundi það gjöra
eins mikla brej'tingu eins og Island væri tekið upp og flutt 200—
300 mflur sunnar f Atlantshafið. Og hver veit hvað verða kann
úr landinu og þjóðinni þá?