Muninn - 01.05.1960, Blaðsíða 18
REGN
Hefurðu reikað um rigninganótt,
og hugsað, hvað býr bak við gluggatjöldin?
Kannski ríkir þar gleði, kannski sorg,
ef til vill aðeins djúpur friður
þeirra, sem sofa.
Rigningin bylur á gangstéttinni,
en þú veitir henni naumast athygli,
því þú ert henni vanur, þykir vænt um hana.
En þeir, sem inni eru,
hlæja, gráta eða sofa.
Þannig er tilveran.
Regninu slotar,
nýr dagur rís í austri
af rigninganótt.
En sá, sem vakti, veit meir en þeir,
sem inni voru. Hann veit það sanna
um hið mannlega líf.
ZETHA.
SIJÖRNUR
Stjörnurnar eru augu himinsins,
sem lesa hugsanir mannanna
og sjá, skynja og hugsa
nær en nokkurn grunar,
þær vita öll forlög þín.
En þú einskis nýti maður,
táldreginn af vélheiminum
hugsar ekki sjálfstætt,
hvorki hatar né elskar
en samt lifir þú.
Því sál þín mun leita
burt frá hinu lífvana lífi,
að hinu fullkomna, og finna það.
Annars muntu hverfa í myrkur
hins eilífa dauða.
ZETHA.
90 M U N I N N