Muninn

Årgang

Muninn - 01.05.1997, Side 26

Muninn - 01.05.1997, Side 26
Hvernig var að alast upp í Grímsey? Ég flutti hingað þegar ég var átta ára gömul en afi og amma búa hérna þannig að ég kom alltaf á sumrin. Þaö var miklu skemmtilegra að eyða sumrinu hér en í Reykjavik. Hérna var ég frjáls og gat verið úti öll kvöld. Það var mjög gott að alast hér upp en við fjórtán ára aldur þurfti ég að fara í land vegna skólans og kynntist lífinu þar. Eftir það varð alltaf leiðinlegra og leiðinlegra að koma aftur heim, því ég eignaðist fullt af vinum á Dalvík en hérna voru engir krakkar á mínum aldri. Samt var alltaf mjög gott að hitta fjölskylduna aftur. Skynjar þú einhvern þroskamun á Akureyringum og landsbyggðarfólki? Við erum fljótari að kynnast öðru fólki og eigum auðveldara með það að tala við fólk heldur en Akureyringarnir. Það er talað um að það sé erfitt að kynnast Akureyringum en ég trúi ekki að það sé bara vegna þess að þeir séu Akureyringar. Ég fór ein til Akureyrar og þekkti engan í Menntaskólanum en Akureyringarnir eru kannski búnir að vera alltaf á sama staðnum og eiga fullt af vinum. Ég var hins vegar að Laugum í 8. bekk, Dalvík í 9. bekk, ég bjó á Húsabakka í 10. bekk en var í skóla á Dalvík og svo fór ég loks til Akureyrar. Þannig að maður þjálfast í því að kynnast fólki. Hvaða augum finnst þér aðrir íslendingar líta Grímseyinga? Ég held að fólk viti ekkert um Grímsey og mannlifið hér. Sumir halda að þar búi sérstakur þjóðflokkur og gera grín að okkur með skrítlum eins og: „Þekkirðu hinn Grímseyinginn?" Fólk veit ekkert hvernig er hér. Það heldur að hér séu bara þrjú hús og að allir séu undan sama fólkinu. Maður hefur orðið fyrir því að fólk spyrji hvort það sé sjónvarp hérna og hvort við náum Stöð 2. Þótt við séum á eyju þá er þetta í raun bara eins og hver annar smábær. Hér eru samt einungis tvær til þrjár stórar ættir sem byggja eyjuna. Amma mín og afi eru til að mynda þremenningar. Ég var alltaf að pæla í því að amma mín og frænka afa hétu nákvæmlega sama nafninu en skildi aldrei út af hverju fyrr en mamma sagði mér að þetta væri sama konan. Það eru mörg dæmi um að systkinabörn séu gift. Karlarnir eiga vist að vera duglegri við að draga aðrar konur til eyjarinnar en innfæddu konurnar flýja bara. Strákarnir byrja flestir 10-11 ára að fara á sjó og ef þeir fá bakteríuna, þá er ekki aftur snúið. Stelpurnar hafa hins vegar ekkert að gera á sjó og forða sér því frekar burt. Þær hafa því ekkert að gera hérna og ég get ekki hugsað mér að búa hérna í framtíðinni. Hverjir eru kostir og ókostir eyjarinnar? Það er ókostur hvað störfin eru einhæf. Annaðhvort ertu á sjónum eða einhverju sem tengist honum eða þú ert heimavinnandi húsmóðir. Fyrir utan það að vera heima geta konur bara unnið í búðinni, sundlauginni og pósthúsinu. Það er auðvelt að einangrast því þaö er ekki alltaf hægt að komast í land. Ef einhver slasast er engin trygging fyrir því að hann komist undir læknishendur. Kosturinn við að alast hérna upp er frelsið. Allir litlir krakkar sem koma í heimsókn vilja ekki fara í burtu þvi það er svo rosalega gaman hérna. Þeir vilja helst vera hérna allt sumarið og leika sér við bryggjurnar, tjarnirnar og niður við fjöru. Hér eru alls konar fuglar og krakkarnir geta tínt kríuegg og brasað í ungunum. 26 M U N 1 N N 19 9 7
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.