Muninn - 01.05.1997, Blaðsíða 30
Edward Hákon Huijbens útskrifaður úr MA vorið 1996, skráður í HÍ
- um haustið og tók afdrifaríka ákvkörðun eftir tvöfaldan efnafræðitíma...
VISINDINefla,
ALLA DAÐ
Kæri lesandi, það sem hér fer á eftir er sönn lífsreynslusaga
ungs manns sem er að henda sér í hringiðu lífsins. Á þessum línum er
að finna margan gagnlegan punktinn um hvað ber að varast.
Sagan hefst á Akureyri í lok ágúst 1996. Þegar búið er að
hlaða bílinn með öllu nýtilegu er haldið af stað, Reykjavík er
áfangastaðurinn og eftir næturstopp á Akranesi er maður kominn.
Hérna byrjar svo ballið. Þegar ég var búinn að koma mér fyrir
í nýju heimili var komið að því að skoða alla 30 fermetrana. Nú, þar var
risastórt rafmagnsinntak við hliðina á skrifborðinu, rafmagnstafla frá
16. öld ofan við boxpúðann, sem fylgdi með íbúðinni, undarlega
skreyttir skápar og þunnt þil sem aðskildi mig frá óhljóðum næstu
íbúðar. Sturtan og forstofan voru eitt og sama svæðið og meðan ég
baðaði mig gat ég eldað matinn. Svo þegar ég fór að þvo upp gat ég
setið á klósettinu við verkið, sem fór fram í eina vaski íbúðarinnar, sem
var tryggilega komið fyrir undir stiga upp í næstu íbúð. Þarna var mjög
margt sem þurfti að gera en ég lét það verða mitt fyrsta verk að rífa út
allar raflagnir til þess eins að færa Ijósið úr sturtunni, en augljós hætta
stafaði af því, og eftir heilan dag baðaður í víraflækju tókst mér loks að
færa Ijósin til og koma upp sómasamlegri lýsingu. Það merkilega er
samt að ég vissi um fólk sem var í helmingi verri íbúðum með helmingi
hærri leigu. Þannig álykta ég að það borgar sig að fara að skima strax
eftir góðri íbúð. Úr þessari íbúð ákvað ég svo að flytja eftir að verða
vitni að undarlegu samtali í næstu íbúð við hliðina klukkan 5 á
föstudagsnóttu.
30 M U N I N N
1
9 9 7