Muninn - 01.05.1997, Page 97
treystandi. Það á að vera réttur almúgans að setja takmörkin, þess vegna þarf að
ræða þetta opinberlega og það þarf að taka ákvarðanir um það í hvaða átt á að
beina vísindunum. Vísindin hafa af eigin rammleik farið ýmsar villigötur.
Mannfræðin lenti til að mynda á hrikalegum villigötum snemma á öldinni, gekk
nærri því að sjálfri sér dauðri. Það er bara eitt af verkefnum samfélagsins að
komast að niðurstöðu um það hvaða möguleika á að nýta og hvert á að beina
vísindum.
Já, já. Hvern eða hverja vildir þú helst sjá einræktaða?
...Hvaða menn..öhömm.....ja...ég bara veit það ekki.
Já, já. Óttast þú reiði trúarlegra ofstækismanna ef mennirnir láta verða
af áformum sínum um einræktun í stórum stíl?
Það er nú alveg sér kapítuli hvernig þeir fara að því að komast að niðurstöðu um
það hvað er rétt og rangt. En ég held að þó svo að einhverjir yrðu svo vitlausir að
einrækta mann að þá yrði hann ekki eins og fyrirmyndin eða sá sem erfðaefnið
kemur frá, hann yrði allt öðruvísi, meira að segja eineggja tvíburar verða ekki eins.
Þess vegna finnst mér að við ættum ekki að láta einhverja ofstækishópa stjórna
stefnunni í þessu.
Ég skil en vilt þú segja eitthvað að lokum?
Mér finnst gott að þú skulir taka upp þessa umræðu, sérstaklega núna á skírdag
þegar að frelsarinn sagði að einhver myndi svíkja sig, og með sama hætti verðum
við að vera á verði gagnvart því að það ætli sér ekki einhver að svíkja hið góða í
mannlegu samfélagi.
Jájájá.
HRAFNKELL BRYNJARSSON
M U N 1 N N
1 9 9 7 97