Muninn

Volume

Muninn - 01.05.1997, Page 105

Muninn - 01.05.1997, Page 105
óþolandi fólk. Það er alkahugsunarháttur í samfélaginu og það er dekrað við þá. Alkohólismi er enginn sjúkdómur, þetta er ístöðuleysi, andleg fötlun og vitlaus núllpunktur. Of mikill mínus, of lítill plús. Það er aðalatriðið fyrir mann sem hefur farið eitthvað úrskeiðis af alkohóli að vinna þetta upp og ná norminu, fá réttan núllpunkt og rétta sjálfsmynd. I mínu tilviki var þetta tilfinningaflótti, ég var alinn upp í stofnun við óeðlileg skilyrði. Mér finnst það annars glæsilegt og flott ef menn kunna með þetta að fara. Hinsvegar eru Islendingar þannig að þeir eiga erfitt með að umgangast vín með þokka. Það eru margir sem fást við listir sem nota búsið til að drekka frá sér harma og þunglyndi. Ég vil halda því fram að ef maður hefur persónuleika, þá þarf ekki neitt slíkt. Það er nóg að labba á Súlur. Þegar ég losaði mig við tóbakið, framkallaði ég endorfín með því að hlaupa eins og vitleysingur í fjörunni austur á Stokkseyri. Það var ekkert gott að fá þessa hroðalegu löngun þegar hver einasta sella argaði á tóbak. Sem betur fer sigraðist ég á því. Maður á að vera svo sterkur að geta verið bæði óháður mönnum og málefnum. Sá maður sem er háður mönnum og málefnum, háður klíku og persónulegum samböndum, er enginn maður. Ég er í engri klíku, ég er bara fighter. Það er rosaleg staða fyrir listamann eins og mig að þurfa að treysta á sjálfan sig í blíðu og stríðu. Stundum getur það verið ansi sárt að þurfa alltaf að berjast og það er djöfulsins órói sem fylgir því. Maður veit ekki hvenær og hvort maður á til hnífs og skeiðar en það er þetta veraldlega öryggi sem allt snýst um. Það verður að selja vöruna. Mér finnst þessir nýju kollegar mínir reyna að byggja einhver fínheit í kringum það að vera listamaður. Þeir gleyma því að þeir verða að fara í gegnum harða lífsreynslu og hljóta sína eldskírn. Það er ekki nógu mikið spunnið í listina í dag vegna þess að það vantar dýptina í hana. Það vantar kraftinn í hana og veðrið, það vantar náttúruna, ólguna, hormónana og passionina. Það er ekkert varið í list nema það sé villikraftur í henni, taumlaus villikraftur. Hann getur verið heflaður eins og í Júpítersinfóníunni eftir Mozart. Ég spilaði hana á hverjum degi þegar ég var kennari á Akureyri ásamt djassi eins og Duke Ellington og Louis Armstrong. Ef ég væri tútor hérna við skólann myndi ég hiklaust lofa nemendum að hlusta á góðan Dixieland. Skárra en helvítis þungarokkið sem '68 kynslóðin heilaþvoði sjálfa sig með. Þetta er engin músík, bara trunt, trunt og tröllin í fjöllunum. Þetta er hrottalegur djöfulsins viðbjóður og ógeð. Kommúnistar eru afætur, illgjarnir og villa á sér heimildir. Þeir eru alltaf að tala um frelsi, jafnrétti og bræðralag en eru í raun mestu ójafnaðarmenn sem eru til. Þetta eru metnaðarfullar sálir sem öfunda menn fyrir dugnað og þá sem standa sig vel. Guð almáttugur er minnsti sósíalisti sem til er. Hann deilir ekki jafnt því sumir eru fallegir og sumir eru gáfaðir. Hins vegar trúi ég á sósíalisma hjartans t.d. í vináttu. Þú verður að deila jafnt með félögum þínum. Hins vegar trúi ég á einkaframtakið. Ég trúi á áræði, djörfung, hyggindi, brjóstvit og vilja mannsins. Akureyri er „Dixie of the North" og í gamla daga voru hér brjálaðir hægrisinnar, svonefndir „lunatic right." Það var djöfull mikill stíll yfir Akureyringum og þeir héldu glæsilegar veislur með danskri tradition. Ég ólst upp við þetta og er mjög veisluglaður. Mér hættir til þess að halda stórar veislur og eyða peningum í það. Fólk hneyklast á þessu en mér finnst þetta miklu betra en að fara til Mallorca og vera þar innan um einhverja leiðinlega íslendinga. Mér líður alveg ótrúlega vel hérna og er mjög jákvæður gagnvart Akureyri. Málið er samt að þjóðin er að úrkynjast og er á leiðinni til andskotans. Af hverju er ekki latína tekin upp hérna í skólanum? Þó einhverjir djöfulsins sænskmenntaðir og ómenntaðir idíótar og hundasálfræðingar segi að latína sé óþörf. Hún er bara lífsnauðsynleg. Þú lærir ekki vel tungumál nema kunna latínuna. Eins og Þórarinn Björnsson sagði, þá þarf karakter og skap til að nema sum fög eins og latínu og stærðfræði. Það er enginn skóli án þungra faga. Þessi krossapróf eru ógeð og stíluð upp á idíóta með enga heiiastarfsemi. Það er vegna þess að genin eru vitlaus. Sá maður sem er háður mönnum og málefnum, háður klíku og persónulegum samböndum, er enginn maður Steingrímur St. Th. Sigurðsson myndir: Orri M U N I N N 19 9 7 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.