Heimilisblaðið - 01.07.1965, Blaðsíða 22
í húsdýraverzlun í Lundúnum
á þessi 35 ára gamli páfa-
gaukur heima. Hann er svo
skynsamur að óhætt er að
lofa honum að vera úti á gang-
stéttinni, og af því hefur hann
kynnzt þeim, sem daglega
fara framhjá, þar á meðal
þessari stúlku, sem oft stanz-
ar til að tala við hann stund-
arkorn.
Fyrir nokkru fannst 50 kg
sprengja í Lundúnum, en sem
betur fór, var hún orðin óvirk.
— Á myndinni sést hermaður
fjarlægja hana.
Þegar hlýnar í veðri og úti-
lífið er mest, er gott að eiga
hjálpfúsa. leiksystur.
Mikla athygli hafa réttarhöld-
in gegn Ginu Lollobrigidu og
meðleikara hennar í myndinni
„Brúðurnar“ vakið, en hún hef-
ur gefið þá skýringu að hún
hafi verið í aðþröngum föt-
um með hörundslit.
KlaÆaverzlun í Köln auglýsir
á þennan hátt: „Sá, sem
þessar buxur eru mátulegar,
fær þær gefins.“ Stúlkan virð-
ist vera hrifin af tilboðinu, en
hún mun verða að kaupa sér
buxur, því að mittismál buxn-
anna er 2 metrar.
í þorpinu Ramsen i Sviss er
ekki gefið út neitt blað, það
hefur því fallið í hlutverk lög-
regluþjónsins, Franz Schnei-
der, að taka sér bjöllu í hönd
og ganga um göturnar og
hrópa upp það, sem hefur
þurft að tilkynna íbúunum.
Hann erfði stöðuna eftir föður
sinn.