Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 19

Heimilisblaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 19
leitað hælis hjá honum. Hún hafði ekki hikað eina sekúndu við að leita verndar hans, eins og það væri sjálfsagður hlutur, að hann gerði sitt ýtrasta til að vernda hana. Þau höfðu ekki verið saman marg- ar klukkustundir, þegar hún hafði borið til hans skilyrðislaust traust, og það þrátt fyrir það, að hún áleit hann ræningja og glæpamann. Eðlishvöt hennar hafði auð- sjáanlega sagt henni, að henni væri óhætt að terysta honum, og í augum Curzons var þetta staðreynd, sem hann var stoltur af. „Úr því að þér og Hermína eruð svona góðar vinkonur," sagði hann, „þá hafið þér að sjálfsögðu aðstoðað hana við þessa gift- ingu. Leyfist mér að spyrja, af hvaða ástæðum þér gerðuð það? Ég hef ennþá ekki getað fundið sennilega skýringu." Hún svaraði spyrjandi augnaráði hans nieð hlédrægu brosi. „Þetta er að verða meinloka í höfðinu á yður, held ég helzt. Ég veit ekki, hve oft þér hafið spurt mig um þetta sama. Nú er komið að mér að bera fram nokkrar spurningar fyrir yður. Það er dálítið, sem ég hef verið að brjóta heilann um núna upp á síðkastið og hef enga skýringu get- að fundið á. Hvernig stendur á því, að maður eins og þér er orðinn að afbrota- manni.“ Hann leit snögglega við og mætti augna- i'áði hennar. Brosið var horfið af andliti hennar, og augun, sem nú horfðu á hann, voru rannsakandi, og í þeim brá fyrir ein- kennilegum angurblíðum, næstum hrygg- um glampa. „Vald kringumstæðnanna," svaraði Cur- zon eftir dálitla þögn. „Aðstæðurnar neyddu mig til þess. Það var hreinasta tilviljun, sem kom mér á þessa braut.“ Hann hugsaði með sjálfum sér, ef hún bara Vissi, hvað hann sagði satt. Gönguför í tunglskini, hattur á múrnum, gítar og aft- anóður — það var þess háttar, sem hafði breytt hinum friðsama sélaverkfræðingi Willie Curzon í þjóðvegaræningja — að minnsta kosti álitu aðrir það. „Það er léleg afsöku,“ sagði Jay. „Kring- umstæðurnar þvinga yður með engu móti til að halda áfram þessa braut. Ég get sagt yður, hvað það er — það er leti.“ Hún hnyklaði fínlegu augabrýrnar af reiði. „Þér eruð of latur til að vinna, er það ekki rétt til getið hjá mér?“ „Nei, hættið nú snöggvast," andmælti hann. „Þér hafið síðustu daga kynnzt vel þeirri tilveru, sem þjóðvegaræninginn lifir. Éinnst yður það vera líf fyrir þann, sem er latur og ónýtur.“ „Nei — þvert á móti!“ viðurkenndi hún. „Það hlýtur að vera meira þreytandi en hin erfiðasta heiðarlega vinna.“ Éramkoma hennar gagnvart honum varð lítið eitt blíð- ari. „En svo er það eftirvæntingin, sem því fylgir, sem lokkar yður, Ruy. Það er ævintýraþrá yðar, er það ekki?“ „Ef það er þannig þá getur maður sann- arlega sagt, að öll ævintýralöngun mín sé horfin út í veður og vind,“ svaraði hann. Hún beygði sig áköf að honum og horfði á hann með rannsakandi augnaráði. „Mein- ið þér með þessu, að þér viljið segja skilið við þessa iðn að fullu og öllu?“ sagði hún spyrjandi. „Að þér viljið byrja að vinna — ég meina eins og annað fólk?“ „Ég gæti vel freistast til þess — ef ég slepp frá þessu lifandi." „Ó, Ruy!“ hrópaði hún. „Maður eins og þér gætuð gert hvað sem væri — allt sem þér bara byrjuðuð á.“ Hún lagði hendina á handlegg hans og röddin skalf af ákafa. „Þér ættuð að reyna það — ó, það ættuð þér að gera! Ég vildi fegin óska þess.“ „Ég þekki dálítið til landbúnaðar- áhalda,“ sagði hann þurrlega. „Það gæti vel hugsast að ég gæti fengið atvinnu í þeirri grein.“ Hann langaði til að segja henni, að hann væri bara Willie Curzon, löghlýðinn banda- rískur borgari, sem aldrei hafði rænt heimilisblaðið 163

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.