Heimilisblaðið - 01.09.1979, Page 33
Kalli og Palli hafa keypt sér vatnsbyssu. Þeir ganga
niður að tjörninni og fylla hana af vatni og fara svo
að leita að einhverjum, sem þeir geta sprautað á. Fyrst
mæta þeir skjaldbökunni og Kalli sprautar yfir haus-
inn á henni. Lítill fugl, sem kemui’ fljúgandi verður
holdvotur, þegar Palli skaut á hann. En Júmbó hefur
séð þetta allt. „Ég skal kenna þeim að vera ekki að
ganga um og stríða þeim, sem eru minni en þeir sjálf-
ir!“ hugsar hann og fyllir ranaim af vatni. Og þá fá
Kalli og Palli það, sem þeir eiga skilið.
„Hæ, hæ, hættið þessu!“ hrópa Kalli og Palii til
negranna tveggja, sem eru að slást. „Þið gætuð meitt
hvor annan! Þessi spjót eru allt of hvöss ... sjáið
bara til!“ Og svo binda Kalli og PalU boxhanzka á
spjótsoddana og dýfa þeim í mjöl. „Nú getið þið byrj-
að aftur!“ Svo lumbra negrarnir tveir hvor á öðrum,
svo að mjölið rýkur. Þegar þeir sjá skömmu seinna
hvernig þeir líta út — allir hvítir — hlæja þeir svo
dátt, að þeir gleyma alveg af hverju þeir voru að slást.