Heimilisblaðið - 01.09.1979, Qupperneq 34
„Æ, þú mátt aldrei ganga undir stiga, þaö boöar
ógæfu!“ segir Palli. Þeir eru afar hjátrúarfullir báðir
Kalli og Palli. Skömmu seinna hleypur svartur köttur
yfir veginn fyrir framan þá. „O, þetta boðar ógæfu,“
hrópar Kalli upp. Þegar þeir koma heim sér Palli á
dagatalinu aö það er sá 13., sem líka boðar ógæfu.
Nú eru þeir alveg vissir um, að þetta hljóti að enda
með skelfingu. Það er barið að dyrum — og póstsend-
illinn kemur með stóran pakka frá Önnu frænku. I
pakkanum er stærðar súkkulaðikaka. Svo að dagur-
inn hafði ánægjulegan endi, og Kalli og Palli eru ekki
framar hjátrúarfullir.
„Klukkan er tíu, við skulum fara að hátta!" hrópar
Kalli. „Mundu að slökkva ljósin og setja bókina á sinn
stað,“ segir hann við Palla sem situr sofandi í hæg-
indastólnum. „Mundu svo eftir að læsa dyrunum!"
bætir hami við um leið og hann skrúfar frá vatns-
krananum til að bursta tennurnar. „Já, ég man það,“
segir Palh. „Ég segi þetta af því þú ert svo gleyminn!"
segir Kalli. ... Þegar þeir vakna um morguninn eftir
spyr Palli: „Segðu mér, KaUi, myndirðu eftir að loka
fyrir vatnskranann í gærkvöldi?" Sjálfur hafði KaUi
gleymt að loka fyrir vatnið og nú var allt á floú *
húsinu.