Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1917, Qupperneq 15
IÐUNN1
David Lloyd-George.
301
Síðan ferðaðist hann boi'g úr borg og úr einu hér-
aði í annað og flutti friðarboðskap sinn. Á friðar-
stefnum þessum lá honum oft við meiðslum og einu
sinni ef ekki oftar við Qörtjóni. En hann kunni ekki
að hræðast, og þó hann ynni ekki á í svipinn, er
það samt ætlun merkra og athugulla rithöfunda, að
verndartollabarátta Chamberlain’s og friðarleiðangur
Lloyd-George’s hafi stutt mest og bezt að þvi, að
frjálslyndi flokkurinn hófst til valda 1905. Þegar
berserksgangurinn tók að renna af brezku þjóðinni,
fór mönnum að finnast mikið um hina djörfu
og einörðu framkomu Lloyd-George’s. Ýmsir máls-1
metandi menn í frjálslynda flokknum fóru nú að
gefa litla manninum ineð ,mikla og gáfulega höfuðið*
gaum sem ráðherra-efni, og þegar Campbell-Banner-
man tók við stjórnarforræðinu af Balfour í árslok
1905, gerði hann Lloyd-George að viðskifta- og
verzlunarráðherra, til þess að tryggja sér fylgi hinna
framgjörnustu umbótarmanna. Embættið var afar-
örðugt og margir, sem þektu ekki starfskrafta eða
starfsþol Lloyd-George’s, drógu mjög í efa, að hann
væri stöðunni vaxinn. En það er skemst af að segja,
að enginn fyrirrennari hans hefir gegnt embættinu
með annari eins röggsemi og stjórnsemi og hann þau
tvö ár, sem hann hafði það á hendi. Hann bætti
mikið starfræksluna í stjórnardeildum sínum og gerði
rekstur málanna skjótari og óbrotnari, enda fékk
hann að kunnugra manna frásögn komið á meiri
og fleiri umbótum á tveimur árum en fyrirrennarar
hans á tiu. Hann þótti ekki að sinu leyti óöruggari
til varnar i ráðherrastólnum en hann hafði verið
sóknharður á þingmannabekkjunum og var því jafnað
til hins frækna hershöfðingja Búa og kallaður ,The
Liberal De Wet‘. Hann þótti laginn á að koma fram
fyrirætlunum sinum við hvern sem var að skifla, og
það var haft að orðtaki, að menn sem sæti á ráð-