Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1917, Blaðsíða 20
30G
Þorleifur H. Bjarnason:
IIÐUNN
ins og stytt mörgum þeirra aldur. Hugði hann gott
til þess að verða foringi frjálslyndra manna í bar-
áttunni um valdsvið efri málstofunnar. Mælt er að
Asquith hafi ekki verið allskostar ánægður með þessi
úrslit, en þar sem nú ekki var annars kostur en
láta skríða til skara, lagði hann það til við konung,
að þingið skyldi rofið og stofnað til nýrra kosninga.
Var því næst gengið til nýrra kosninga og þær
sóttar af mesta kappi og höfðu leiðtogarnir sig eink-
um mjög í frammi. LIoyd-George lá ekki á liði
sínu heldur en hann er vanur, færði drjúgum að
andstæðingum sínum og gerði gys að þeim. Lávarða
þá, sem tóku þátt í kosningabaráttunni, kallaði hann
,farandtrúða‘ og valdi ölgerðarmönnum og vínsölum,
er lögðu stórfé af mörkum lil kosningarsjóðs íhalds-
manna, ýmis ófögur heiti. Frumvarp sitt kallaði hann
.fjárlög lýðsins' (,The People’s Budget') og lagði ekki
í lágina, hve mjög það bælti úr ýmsum vankvæðum
alþýðu. Við kosningarnar unnu íhaldsmenn og sam-
veldismenn samt svo mikið á, að þeir urðu jafn-
mannmargir í neðri málstofunni og frjálslyndi flokk-
urinn, en hann varð samt sem áður t'yrir fylgi flokks
óháðra verkamanna og írskra þjóðernismanna í 12&
manna meiri hluta. Báðir þessir flokkar vildu gjarnan
leggjast á eitt með frjálslyndum mönnum og hnekkja
lávarðadeildinni, sem var svarinn óvinur flestra
áhugamála þeirra.
Eftir harða riinmu samþyktu lávarðarnir loks fjár-
lagafrumvarp Lloyd-George’s í apríl 1910. En skömmu
áður hafði forsætisráðherrann í samráði við Red-
mond, foringja írskra þjóðernissinna, stórvitran mann
og þingkænan, lagt nokkrar þingsályktunartillögur
fyrir neðri málstofuna, er beindust að því, að svifta
lávarðadeildina öllu synjunarvaldi í fjár-
málum og skerða það stórum í öllum öðrum
málum. Hafði Redmond gert það að skilyrði fyrir