Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1917, Blaðsíða 25
IÐUNN1
David Lloyd-George.
311
varð það hlutverk hans að koma þessu í framkvæmd,
og leysti hann það starf af hendi með frábærri fyrir-
hyggju og dugnaði. Með lipurð og lægni kvað hann
niður mótþróa þann, er borið hafði á hjá verka-
mönnum þeim, er störfuðu að tilbúningi skotfæra og
annara hernaðarnauðsynja. Hann lét ríkið takast á
hendur umsjón með rekstri og starfi verksmiðja
þeirra, er störfuðu í þarfir ófriðarins og einstakir
menn áttu. Hann reri öllum árum að því, að konur
ynnu í þarfir hernaðarins, og það með svo góðum
árangri, að um síðustu áramót hafði ein miljón
brezkra kvenna slík störf með höndum. Hann átti
mikinn þátt í því, að herskylda var leidd í lög á
Bretlandi og hefir i stuttu máli sýnt, að hann vill
ekki láta neitt ógert, er ráðið geti sigri bandamanna.
Fyrir þetta er liann orðinn átrúnaðargoð þjóðar
sinnar: honum er falið að ráða fram úr þvi, sem
aðrir eru gengnir frá og fylla skörð þau, er seint eða
aldrei verða fylt. í*að var í fylsta samræmi við al-
menningsálitið, að honum var síðastliðið sumar faiin
stjórn hermálanna, þegar öll þjóðin var gagntekin af
söknuði út af hinu sviplega fráfalli Kitcheners lávarðar.
Það mun einnig hafa verið að óskum þjóðarinnar,
að hann varð eftirmaður Asquiths, þótt hann hafi
svo aldrei nema brugðið fæti fyrir hann. Nú verður
orka sjálfs hans, þrautseigja Breta og rás viðburð-
anna að leiða í ljós, hvort hann verður eins giftu-
drjúgur í stjórnarforseta-sessinum og hann hefir verið
hingað til., En þar kennir grályndis hamingjunnar,
að hann, sem hefir áður lagt alt í sölurnar fyrir
friðinn, mannorð, mannaforráð og fjör og verið
nefndur ,friðarpostuli‘, er nú fyrir andviðri tímanna
orðinn höfuðforkólfur hins tryltasta ófriðar, sem
nokkuru sinni liefir verið háður.
Porleifur H. Bjarnason.