Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 49

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 49
IÐL'NN íslenskir fálkar og fálkaveiðar fyrrum. 287 þótt eldri væru. Félkinn varð að vera gallalaus; vængja- og stélfjaðrir heilar, hafa góða matarlyst og vera hnarreistur, ekki slæptur eða lúpulegur, því að þá var hætt við að hann væri sjúkur, og enginn fálki var keyptur nema hann hefði setið 8 daga minst eftir hann var veiddur. Pá varð fálkinn og að hafa góð augu, ekki gilda fætur og vera radd- góður. Ferðafálkarinn þótti títt hlutdrægur, og það orð lék á, að hann léti múta sér. Eitt sinn hafði ferðafálkarinn ranglega hafnað 60 fálkum, þar af 15 frá sama manni, að eins vegna þess, að fálkafang- ararnir höfðu ekki »smurt« hann áður. Ferðafálkar- inn ákvað einnig lit fuglsins og þurfti til þess sajn- viskusemi ef rétt skyldi vera, því að nær enginn fálki var alhvítur, sem þó mátti teljast hvítur. Verð það sem fálkaföngurum var greitt fyrir fálka var lengi vel 15 rdl. croner fyrir hvítan, 10 fyrir hálfhvítan og 5 fyrir gráan. Árið 1739 var verðið fyrir gráa hækkað upp í 7 rdl., og 1743 var heitið 4 rdl. aukaþóknun fyrir hvíta og 2ja rdl. fyrir hálf- hvítá, þegar sérstaklega stóð á, en með konungsúrsk. 4. jan. 1764 var það gert að almennri fastri reglu. Þegar móðuharðindin stóðu yfir, fóru fálkafangarar fram á hækkun þessa verðs, sökum dýrleika kjöts. Sögðu þeir, að verðið eins og það var, væri lítið meira en fyrir fóðri fálkans. Gerðu þeir kröfu um .20 rdl. croner fyrir hvíta og 10 fyrir gráa, og ætl- uðust vitanlega til, að aukaþóknunin fyrir hvíta héldist. Skúli landfógeti mælti með þessari beiðni. Sýndi hann fram á, að fálkafangararnir beinlfnis sköðuðust á veiðinni, nema hún gengi því betur. Miðað við fálkatekju siðustu 10 ára, hefðu 5 fálkar komið á hvern veiðimann að meðaltali, og eftir verð- laginu hefði fengist fyrir þá 37 rdl. 18 sk., en veiði- menn þyrftu að fá 52 rdl. 4 sk. cour. Var verðið þá hækkað upp í 20, 15 og 10 rdl., en aukaþókn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.