Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Blaðsíða 82
320
Ritsjá.
IÐUNN
urn þorsksins og sérstökum beinum. Af rannsóknum pess-
um hafa menn fræðst mjög um stærð og proska porsksins
á ýmsum aldri, og eins að jafnaldra porskar eru að jafn-
að stærri hafi peir alist upp í hlýja sjónum við suður- og
vesturströnd landsins, heldur en við Norður- og Austur-
land.
Mest af porski sem veiddur er hér við land er á æsku-
skeiði, eigi nema 4—8 ára gamlir. Ró veiðist nokkuð af
eldri fiski, og stöku golporskar hafa veiðst, sem verið hafa
20—25 ára gamlir. G. G. fí.
Knul Hamsun: Pan. Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi
pýddi. Rvík. Stúdentaráð Hásk. ísl. 1923.
Hér verður ekki skrifað um söguna sjálfa. Hún er fyrir
löngu fræg orðin, eitt af pektustu verkum Nóbelsverðlauna-
skáldsins Hamsúns, og fjöldi manna hér á landi er henni
kunnur á frummálinu. Les hana varla nokkur svo að hann
ánetjist ekki í peim hárfínu silkimöskvum, sem skáldið
hefir hér riðið utan um ástir og aðra krókavegi manns-
bjartans, og gefist upp við að »kritisera.«
Pýðingin getur ekki kallast neitt annað en meistaraverk.
Ekki aðeins að málið sé hreint og fagurt, mjúkt og pó stælt,
heldur hefir pýðandinn alveg ótrúlega náð sjálfum hinum
cinkennilega leik höf. með stílinn, sem allir pekkja, er ein-
hverntíma hafa opnað bók eftir Hamsun.
Frágangurinn er prýðilegur og ágóðinn rennur til Stú-
dentagarðsins. Ætti alt petta að verða ærin ástæða til pess,
að upp seldist bókin á skömmum tíma. M. J.
Leiðrclling.
Á bls. 82 er prentað Dogirsen en á að vera Dagvisen.