Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 67

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 67
iðunn J. S. Bergmann: Ferskeytlur. 305 Blítt af ysta bjargatind blærinn kysti daginn, sem við nyrstu sjónarmynd seig — og kysti æginn. í dögun I Strjúgskarði. Létt er yflr Langadal lyftir dagur brúnum skrifar breiðan blómasal björtum geislarúnum Eygló býður öllu grið árla’ og síð um daginn. Mörk og hlíðar mynnast við munarþýðan blæinn. Brim. Friðarandinn flýr af stað fyrir strandarskærum þar sem Blanda ólmast að ystu landamærum. J. S. Bergmann. Handrit, sem ekki eru notuð, verða ekki endur- send nema beðið sé um og burðargjald fylgi. Iðunn VIII. 20

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.