Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Page 22
216
Trúin á samfélagið.
IÐUN.N
áhrif á hag hinna. Vér vitum, að samgöngurnar milli
landanna verða auðveldari ár frá ári og samskiftin
aukast að sama skapi á öllum sviðum. Þessi samskifti
aukast ekki bara jafnt og þétt, áratug eftir áratug,
heldur með síuaxanc/i hrada. Um tugjjúsundir ára lifðu
og dóu steinalidar-kynslóðirnar, án pess að einn kyn-
flokkur fengi náin kynni af öðrum, en á siðustu 50 ár-
um hafa samgöngutækin tekið þeim breytingum, að
vart er þekkjanlegt, og samskifti þjóðanna og kynning
aukist að því skapi.
Saga mnnnkynsins flytur oss fagnaðarboðskap sam-
vinnunnar. Ef tilvera vor á að hafa nokkurn tilgang,
verðuim vér að iðka samstarfið af alhug, gera ])að víð-
tækara með hverjum degi og treysta samtök j)au, er
vér höfum þegar bundist. Til jress á trúin á samfélagið
•að hjálpa oss. Trúin þarf að vera tímabær; hún
verður að eiga samieið með þróun lífsins, ef vér vilj-
um sjá verulegan árangur af striti voru og stríði.
V. '
En onkar nú ekki gamla trúin þessum hlutmn? anunu
menn spyrja. Vér vdtum þó hvað vér höfum, en ekki
hvað vér hreppum. Boðar ekki kristindómurinn einmitt
kærleik til náungans og samvinnu við hann? — í fyrsitia
iagi er kærleiksboðskapurinn ekki' einhlítur, eins og
þegar er vikið að. í annan stað getur leikið á því
nokkur vafi, hvort kristindómurinn sé sá aflvaki í
lífinu, sem' örvi framvinduna hér á jörðu. Kristindóm-
urinn, eins og hann hefir lengst af verið kendur, loggur
yfirleitt lítið upp úr þessu lífi. Með því að beina athygli
manna og áhuga stöðugt að öðru lífi, handan við dauða
og gröf, dreifir hann kröftunum frá j)ví starfi að gera
samlíf mianna hér á jörðu sem réttlátast og fullkomnast.