Kirkjuritið - 01.11.1935, Side 10
370
Magnús Jónsson:
KirkjuritiÖ.
þessi maður, sem hvarflaði svo víða i trúarskoðunum,
var af insta hjartans grunni trúmaðurinn mikli.
Að vöxtunum til hefir Matthías ekki ort mjög mikið
af sálmum. í sálmabókinni eru innan við 20 frumortir
sálmar eflir hann. Og þó að leilað hafi verið, bæði að
honum lifandi (sbr. formála próf. Haralds Níelssonar
fyrir sálmasafninu „Þitt ríki komi“) og eftir hann lát-
inn, liefir víst ekki tekist að koma þeim upp í 30, sem
hirtir hafa verið i sálmasöfnum.
En það er ekki ómerkilegur dómur um þessa sálma,
sem i því felst, að flestum mun finnast þetta ótrúlegt.
Ilvernig víkur þvi við, að flestum mun finnast Matthías
eigi stóran hlut í sálmabókinni, þó að hann eigi að-
eins 17 frumorta sálma og 9 þýdda og sé 7. maður í
röðinni að sálmafjölda?
Það er af því, að þessir sálmar eru stöðugt notaðir!
Og það er af því, að hvenær sem einhver þeirra er sung-
inn, vekur liann athygli og hrifningu.
Það þarf ekki að leita lengi að forsendum þessa hæsta-
réttardóms kirkjugestanna. Það þarf ekki annað en
nefna upphöf sálmanna. Svo að segja hvert einasta vekur
endurhljóm á svipstundu.
Hvernig getur guðsþjónusta endað stórkostlegar en
með bæninni: Faðir andanna? Hvernig á að koma sam-
an i kirkju á nýársdag án þess að syngja: Hvað boðar
nýárs blessuð sól? Eða i vetrarbyrjun án þess að syngja:
Nú kemur kaldur vetur, 0, kom þú líka, drottinn minn!
Er ekki lieil kirkjuvígsla fólgin i sálminum jötuneflda:
0, maður, hvar er hlífðarskjól á heimsins köldu strönd?
þar sem fyrstu orðin gripa hugann sömu tökum eins og
þegar komið er inn í stóra dómkirkju? Er hægt að hugsa
sér meiri ró og frið, sterkari kvöldroða en í sálminum:
Ó, drottinn, minnar sálar sól? Eða djarfmannlegri
hvatningu en í sálminum: Legg þú á djúpið? Matthías
dáist að Hallgrimi Péturssyni fvrir það, hvernig liann