Kirkjuritið - 01.11.1935, Side 37
Kirkjuritið.
KIRKJUMÁL REYKJAVlKUR.
Nú hefir verið lagt fyrir Alþingi frumvarp til
rumrarp lagt )aga um afhending Dómkirkjunnar til safnaSar-
yrir Aipmg . jns j Reykjavík og fjölgun sókna og presta í
Reykjavík og öðrum kaupstöðum. Er þetta frumvarp það, sem
prentað er í „Kirkjuritinu“, 5. hefti, bls. 220—222, með smá-
vægilegum breytingum frá nefndinni, sem þar er sagt frá. En
flutningsmaður á Alþingi er Pétur alþingismaður Halldórsson.
... . , Hinn öri vöxtur Reykjavíkur hin síðustu árin
or in a sh U vejcjur þvj( ag ekjti er viðunandi, að kyr-
rumvarpi. staða sé á hinu kirkjulega sviði, fremur en
öðrum. í samræmi við kröfur tímans hefir starfsmönnum höf-
uðstaðarins verið fjölgað ár frá ári, eftir þvi sem íbúatalan óx,
og starfsskilyrði þeirra bætt á margvíslegan hátt. Nær þetta
jafnt til uppeldismála, lögreglumála og verklegra mála. Nægir
að benda á aukningu þá, sem orðið hefir á kennaraliði og á
byggingu nýrra skólahúsa, einnig i úthverfum bæjarins. Aðeins
á kirkjumálasviðinu hefir engin breyting orðið á fyrirkomu-
laginu til bóta. Aðeins ein kirkja fyrir söfnuð þjóðkirkjunnar
og 2 prestar, eins og áður, þótt i söfnuðinum séu nú nálægt 25
þúsund manns. Þetta mundi í hverju kristnu landi vera talið
óþolandi ástand, og bersýnilegt er, að ekki verður lengur við
slíkt unað.
. Tillögur þær, sem i frumvarpinu felast, eiga að
yj ti og- tnarka stefnu þessara mála i framtíðinni, og
urnar
leggja lagalegan grundvöll, er gjöri það fært,
að til framkvæmda komist hreytingar þær, sem nauðsynlegar
eru á þessum málum, eins fljótt og unt er. En undirstaða allra
slíkra breytinga er fyrst og fremst það, að skift verði i sóknir,
svo að nýjar stöðvar myndist og kirkjulegum starfsmönnum
fjölgi, jafnt lærðum sem leikum, og áhugamenn fái notið
sín, hver á sínu afmarkaða svæði. Nú sem stendur er þetta ekki
unt á þjóðkirkjugrundvelli án nýrra laga, þar eð ríkið á kirkju
safnaðarins og tekur allar sóknartekjurnar. Aulc þess er sókn-
arskifting aðkallandi vegna þess, að ef ekkert er að gjört, má