Kirkjuritið - 01.11.1935, Blaðsíða 18

Kirkjuritið - 01.11.1935, Blaðsíða 18
378 Magnús Jónsson: Kirkjuritið. Erindið verður að skoðast á bakgrunni kvæðisins. Kyrð þess og tign sést þá fyrst, er hafðir eru í huga stormar og sviftibyljir kvæðisins. En þetta sama sést alstaðar, þar sem eins stendur á. Það er ekki gott að seg'ja með hverju á að freista þess manns, sem alt í einu brýst undan liverju fargi og æpir: Fyrir hálmstrá herrans jötu frá hendi ég öllu, lofti, jörð og sjá! Og efasemdirnar eiga ekki liægan leik, þegar skáldið svarar öllum árásum örvætingarinnar með þessari livellu lierforingja skipun: Nei, hættu sál mín! verði drottins vilji! hann veit, hann veit, hann veit, þótt ég ei skilji! Hvar sem Matthías nær hæstum tónum hljómar trú- arstrengurinn. Ég ætla ekki að tala um eftirmælin, sem flest eru beinlínis trúarljóð. Eða kvæðin miklu um af- burðamenn eins og t. d. Hallgrím Pétursson og Guð- brand biskup, eða um fræga staði.En hitt er meira, að jafn- vel liafísinn, „landsins forni fjandi“ verður aðeins til þess, að snerta trúarstrenginn svo að liann kveður við, liærra en allir frostbrestir: Veikur maður, hræðstu eigi, hlýddu, hreyk þér eigi, þoldu, striddu. Þu ert strá, en stórt er drottins vald. Hel og fár þér finst á þínum vegi; fávís maður, vittu, svo er eigi, haltu fast í Herrans klæðafald! Lát svo geisa lögmál fjörs og nauða, lífið hvorki skilur þú né hel. Trú þú: — upp úr djúpi dauða drottins rennur fagrahvel. Eða tökum til dæmis kvæðið Leiðslu, þetta kvæði, sem mest allra kvæða hefir yfir sér einhvern ójarðnesk- an blæ, eitthvert „töfrandi tröllheimaspil“. Undir öllum þeim óteljandi registrum, sem þar ljóma, svo að lesand- inn hreint og beint missir ráð og rænu, nötrar loftið af

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.