Kirkjuritið - 01.11.1935, Page 39

Kirkjuritið - 01.11.1935, Page 39
Kirkjuritið. Fréttir. 399 safnaðarins, og mælti hann eindregið með því. Prestastefnan, aðalfundur Prestafélags íslands, héraðsfundur Kjalarnespróf- astdæmis og Kirkjuráð hafa einnig á þessu ári iýst einróma fylgi sínu við frumvarpið, og hinn almenni kirkjufundur í sumar taldi mjög brýna nauðsyn á fjölgun presta í Reykjavík. Þótt flutningsmaður á Alþingi sé aðeins einn, er það þegar vitað, að frumvarpið á góða stuðningsmenn meðal þingmanna í öllum stjórnmálaflokkun- um. Er það því von vor, að ekki líði á löngu áður en frumvarp- ið verði að lögum. S. P. S. Á Alþingi. FRÉTTIR. Fjölgun presta í Færeyjum. Færeyjum var lengi skift í 7 prestakölt, og svo var enn út nlla nítjándu öldina, að þar voru aðeins 7 þjónandi prestar og var einn þeirra prófastur. En nokkru eftir síðustu aldamót var farið að fjölga prestum, og eru þeir nú orðnir 11, en haldið verður áfram að fjölga þeim, eftir því, sem séra Dag M. Möller, prestur í Thorshavn, skrifar, og munu bráðum verða 13 til 14. Svarar prestafjölgunin þá nokkurnveginn til fólksfjölgunarinn- ar á þessari öld, því að um aldamótin munu íhúar eyjanna hafa verið um 15 þúsund, eða rúmlega 2 þúsund á livern prest, en nú eiu þeir taldir um 30 þúsund, eða um 3 þúsundum færri en Keykvíkingar. En þéttbýli er mikið í Færeyjum, bygð öll í bæj- um og þorpum, svo að hægt er að ná til manna. Enda eyjarnar ekki nema rúmlega eitt þúsund og þrjú hundruð ferkílómetrar, en stærð hins bygða lands á íslandi (þegar afréttir og óbygðir eru dregnar frá) er um 42 þúsund ferkílómetrar. S. P. S. I Oxfordhreyfingin í Kaupmannahöfn. 1 sumar sem leið hafa Oxfordflokkar ferðast um í Danmörku, °g þar á meðal ungur Islendingur, Benedikt Jónsson að nafni, frá Vorsabæ í Ölfusi. Hann á nú heima i Winnipeg, en kom hingað til lands snöggva ferð að loknu starfi með flokki sín-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.