Kirkjuritið - 01.11.1935, Síða 40

Kirkjuritið - 01.11.1935, Síða 40
400 Fréttir. Kirkjuritið. um. Hann lét hið bezta yfir vexti og viðgangi hreyfingarinnar í Danmörku. í síðustu blöðum frá Kaupmannahöfn er getið um merkan fund, sem fylgismenn hreyfingarinnar boðuðu til i Forum, stærsta samkomuliúsi borgarinnar. Það tekur 20000 manns, en fyltist alveg áður en fundurinn hófst og þúsundir komust ekki inn. Voru þá einnig boðaðar samkomur í Markúsarkirkjunni og Frúarkirkju samtímis og taka þær háðar 6000 manns. En þó urðu enn þúsundir frá að hverfa. Brodersen stiftprófastur, einn af aðalleiðtogum hreyfingarinnar í Danmörku, stýrði fundinum i Forum, en fjöldi af Dönum, ungum og gömlum, konum og körlum, tóku til máls. Ýmsir ræðumannanna voru nafnkunnir menn. Allar voru ræðurnar persónulegur vitnishurður um það, hvernig Oxfordhreyfingin hefði vakið hjá þeim nýtt líf og hve inikið þeir ættu henni að þakka, farsæld og fögnuð og þrótt- mikla trú á Guð. Nú væru einlægni, hreinskilni, óeigin- girni og kærleiki hæstu hugsjónir þeirra, og við það tæki æfin öll að snúast til batnaðar. En það, sem kristindómurinn megn- aði að koma til leiðar hjá einstaklingunum, mundi einnig geta ummyndað líf heilla þjóða og viðskifti þeirra í milli. Minzt var á hina miklu umbrotatíma, er yfir stæðu og var aðalefni síð- ustu ræðunnar á þessa leið: „Vér eigum mikilvæga kosningu framundan, og könnumst allir við stóru götuauglýsingarnar, sem hvetja oss til að kjósa i milli ákveðins stjórnmálaleiðtoga eða óskapnaðar. Allur heimurinn á að kjósa í milli hins og þessa eða óskapnaðar. Hvar er hjálp að fá fyrir þjóðir og einstaklinga undan ægilcgum Ragnarökum, sem vofa yfir, — annarstaðar en hjá Guði? Vér eigum að velja um Guð — eða óskapnað“. A. G.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.