Kirkjuritið - 01.01.1937, Blaðsíða 12
Kirkjuritið.
BÆN.
Til þín, ó Guð, ég hljóður huga sný, —-
við heimsins iðu-torg ég þreyttur bý.
Þú getur veitt mér fögnuð, Ijós og frið,
ó faðir, ég um þína návist hið.
Ó kom þú þar, sem ligg ég, særður synd,
og svala mér af þinni náðar-lind
og gef mér styrk að standa’ á fætur enn
og starfa gott, því nóttin kemur senn.
Ó veit mér styrk í hverskyns harmi og þraut
og hjálpa mér að ganga rétta hraut;
ó faðir, tak þú hlýtt í mína liönd,
er harmþrunginn ég reika’ um skuggans lönd.
Ó Guð, ég hið um návist þína’ og náð,
þín návist er mitt lif og hjálparráð,
og náð þin er hin eina svalalind,
sem altaf getur læknað harm og sýnd.
Ó þú, sem læknar hæði sorg og synd,
ó sýn mér þína helgu dýrðar-mynd.
þú getur veitt mér fögnuð þinn og' frið,
ó faðir, ég um þína miskunn bið.
Jakob Jóh. Smári.