Kirkjuritið - 01.01.1940, Qupperneq 46
10
Innlendar fréttir.
Janúar.
Odd Gottskálksson og Nýja testamentis þýðingu hans 12. april
næstkomandi.
Kirkjuráðið telur og æskilegt, að í minningu bessa geti hver
höfuðkirkja landsins eignast Ijósprentaða útgáfu af Nýja testa-
menti Odds, og felur forseta að leita fyrir sér um útvegu í þvi
efni.“
Kenslubækur i kristnum fræðum og kristindómsfræðsla i
skólum. Samþykt að rit;i kenslumálastjórninni um eftirgreind
atriði:
a) Að samning kenslubóka i kristnum fræðum verði falin völd-
um mönnum úr flokki guðfræðinga og kennara.
h) Að fjölgað verði kristnifræðistundum i barnaskólum frá þvi,
s'em nú er.
c.) Að prestar hal'i á hendi kristindómskenslu þar, sent þvi
verður við komið.
d) Að við námsskeið Kennaraskólans verði kennurum gefinn
kostur á framhaldsmentun í kristnum fræðum.
Framtíðarstörf Kirkjuráðs. Erindi prófasts Jóns Þorvarðs-
sonar um j)að mál falið prófessor Ásmundi Guðmundssyni til
athugunar og birtingar í Kirkjuritinu. Málinu að öðru leyti frest-
að að sinni.
Kosning varaforseta Kirkjuráðs. Kosningu hlaut prófessor Ás-
mundur Guðmundsson.
Kosning tveggja manna i sálmabókarnefnd. Svo hljóðandi til-
laga Iögð fram: „Kirkjuráðið sér ekki ástæðu til þess að tilnefna
2 menn í hina stjórnskipuðu sálmabókarnefnd, enda mun bisk-
upinn, samkvæmt gildandi reglum, bera undir Kirkjuráð vænt-
anlegar tillögur sinar til breytinga á sálmabókinni.“
Tillagan samþykl með 3 samhljóða atkvæðum (Á. G., G. Sv.,
Þ. Br.).
Séra Gísli Skúlason
hefir verið skipaður prófastur í Árnesprófastsdæmi frá síðustu
áramótum.
Séra Bjarni Þórarinsson
fyrv. prestur andaðist í Reykjavik (i. þ. m. Minningargrein um
hann mun síðar verða birt hér i ritinu. Á. G.
Kirkjuritið kemur úr í 10 heftum á ári, fyrir alla mánuðina
nema ágúst og september, um 24 arkir alls og kostar kr. 5.00
árgangurinn. Gjalddagi 1. apríl — og 1. okt., ef menn kjósá held-
ur að borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast séra
P. Helgi Hjálmarsson, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavík.