Kirkjuritið - 01.10.1940, Page 5

Kirkjuritið - 01.10.1940, Page 5
KirkjuritiS. Faðir ljósanna. 285 Þú blessar, þá bærist moldin og blóm upp úr skuggunum gróa, af fræi, sem fer nið’r í myrkrið, rís fegurð limríkra skóga. Þú öld eftir öld hefir blessað öll augun, sem til þín störðu. Prá þér liggja jafnvel þræðir til þess, sem er minstur á jörðu. Þú sérð inn í sálarfylgsnin, þú sérð, því þú einn ert góður, þá dýrð, sem er óþekt öllum í augum hins fallna bróður. Án þín væri æfin sem andvarp gegn eyðingu mikilvirkri og eilífðin eins og þytur af ókunnum vængjum í myrkri. III. Við bíðum þíns mikla morguns í menningarrökkri gráu. Við föllum fram, daganna drottinn, með dagsverkin okkar smáu. Við bíðum þín, hvort sem þú birtist í blómi eða þyrnunum hörðu, í engilsins máttugu mildi eða mannsbarnsins þjáningu á jörðu. Já, kom þú með vordögg á viðinn, sem vex upp og rödd þinni hlýðir. Já, kom þú með eldinn, sem eyðir, ef æskan skal frelsast um síðir IV. Við dyr þinnar dýrðar stendur hin dauðlega, reikula vera, sem örlitla ást reynist þyngra en alt sitt hatur að bera. Já, maðurinn, maðurinn, herra, í myrkrinu velur sér leiðir. Við hlið þinnar heilögu borgar hann hrjáðan bróður sinn deyðir. Þú grætur í Getsemane, þitt Getsemane er jörðin, þitt Golgata fórnarhof fólksins. um falsguði safnast þar hjörðin, Og þó á veröldin vængi í vanmætti og harmleik sínum, og mannanna mestu draumar mætast í himni þínum. Og ilmur þíns anda geymist í örveika, brákaða reyrnum, og máttugri en marmarans gyðja er mynd þín í jarðarleirnum. Já, Guð, þínir geislar brjótast í gegnum skýjanna raðir. í ásýnd dimmleitra daga sjást drættir þíns andlits, faðir. Þótt myrkt sé á mannsins vegum, það megnar þín börn að hugga, að ljóssins eilífu armar umlykja heimsins skugga. — Aldan, sem ber okkur uppi, er áður en varir hnigin. Frá jörðu (il hæsta himins er hönd þín einasti stiginn. Helgi Sveinsson frá Hranndal.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.