Kirkjuritið - 01.10.1940, Side 6

Kirkjuritið - 01.10.1940, Side 6
Október. Hlutverk nútímakirkjunnar. (Synoduserindi flutt af séra Bjarna Jónssyni 28. júní 1940). Hlutverk kirkjunnar nú er hið sania og áður. Læri- sveinum Jesú Krists er ómögulegt að lialda þvi leyndu, að hjá drotni er hjálp að finna. Þeir finna, að enn er þessi skipun í gildi: „Farið og gjörið ailar þjóðir að læri- sveinum“. Þeir vita, að þeim ber að safna mönnum undir merkisstöng Jesú. Þeir hlusta eftir orðum lians: „Alt vald er mér gefið á himni og jörðu“. Sést það, að hann eigi þetta vald? Hafa menn alment beygt sig fyrir þessu valdi? Nei. En lærisveinar hans vita, að orðin eru sönn, svik eru ekki fundin í munni hans. Honum er gefið þetta vald. Hann á tilkall til allra. En hann neyðir engan. Eins og valdið er gefið honum, eins verða mennirnir að gefast honum, verða lærisveinar hans af fúsum vilja. I augum Guðs eru mennirnir ekki vélar, sem hægt er að stjórna eftir vild. Þeir eru frjálsir menn. Þeir verða að ákveða með frjálsum vilja, hvort þeir vilja lúta valdi drottins eða ekki. En það vita þeir, sem gefast drotni, að hann á eignarréttinn. Vér erum dýru verði keyptir. Þetta þurfa allir að fá að vita. Þetta er kristnum mönnum ljóst, að Jesús á tilkall til allra, en liann neyðir menn ekki til eftir- fylgdar. Hann kallar á menn í kærleika: „Komið allir“. En um leið og kallað er á alla, gerir liann lærisveina sína að trúnaðarvinum og samverkamönnum. Hann segir við þá: „Alt vald er mér gefið, ég á tilkall til allra. En nú eigið þér að starfa með mér og tilkynna mönnunum, að Guð bíði eftir þeim. Ég á tilkall til þeirra, ég gef þeim eilíft líf. Farið því, segið þeim frá þessu“.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.