Kirkjuritið - 01.10.1940, Síða 20
300
S. S.: Séra Tryggvi H. Kvaran.
Október.
Bæði í söfnuði hans og víðsvegar meðal vina hans og
kunningja á hann hinar beztu óskir og fyrirbænir, er
liann hverfur þeim sýn.
Síðast er ég frétti af honum á vettvangi starfsins nokkru
áður en hann lagðist banaleguna, var hann á mannfundi
miklum í Varmahlíð. Þar hafði hann flutt afhurða snjalt
erindi, sem mörgum mun verða minnisstætt, ekki sízl
fyrir það, að það urðu kveðjuorð hans til Skagfirðinga.
Örstuttu síðar kom boð dauðans.
Hann er farinn frá vinum sínum, starfi sínu og baráttu,
samskonar baráttu og vér öll eigum í, við margskonar
erfiðleika lífsins, ytri og innri, baráttuna við margvísleg
andstæð öfl í hinni miklu framsókn til meiri þroska, full-
komnunar og liærra lífs. Einlægustu óskir og bænir gam-
alla félaga og vina fylgja þér, kæri vinur, inn í framtíðar-
landið.
Sigurgeir Sigurðsson.
Nýir nemendur í guðfræðisdeild.
Frá því um síðustu áramót hafa þessir stúdentar verið innrit-
aðir í guðfræðisdeildina:
1. Guðmundur Guðmundsson, Akureyri.
2. Hildur Sívertsen, Reykjavík.
3. Ingólfur Ástmarsson, Reykjavílc.
4. Jón Á. Sigurðsson, Stað á Reykjanesi.
5. Pétur Sigurgeirsson, Reykjavík.
G. Sigmar Torfason, Hrafnabjörgum, Hjaltastaðaþinghá.
7. Sigurður Guðmundsson, Akureyri.
8. Stefán Eggertsson, Akureyri.
9. Trausti Pétursson, Dalvík.
Tólf eru fyrir i deildinni, þar á meðal einn Skoti, Robert
Jobn Jack, frá Milngavic (í grend við Glasgow).