Kirkjuritið - 01.10.1940, Síða 21
Kirkjuritið.
Kirkjumál Reykjavíkur.
Það er nú kunnugt mál, að á síðasta Alþingi voru sam-
þykt „lög um afhending Dómkirkjunnar til safnaðarins i
Rej'kjavík og um skiftingu Reykjavíkur í prestaköll“.
Afhending Dómkirkjunnar til safnaðarins hefir nú farið
fram, og skifting Reykjavíkur í prestaköll er þegar komin
til framkvæmda. Hefir prestakallanefnd og Kirkjuráð í
sumar unnið að skiftingunni, að fengnum tillögum sóknar-
nefndarinnar i Reykjavík, og liafa allir þessir aðiljar orðið
sammála í öllum aðalatriðum um, hvernig skifta skyldi
Reykjavik í prestaköll og kirkjumálaráðherra staðfest
gerðir þeirra. Hafa nú prestaköllin alveg nýlega verið aug-
lýst til umsóknar með umsóknarfresti til 27. nóv. þ. á. og
sennilegt er, að prestskosningar í hinum nýju prestaköll-
um geti farið fram fyrir eða um miðjan desembermán-
uð.
Lög þessi hafa í för með sér miklar breytingar á skip-
un kirkjumála í Reykjavík. Ég hygg að meginþorra þeirra
manna, sem um kirkjumál hugsa, komi saman um, að
þessarar breytingar hafi verið þörf, og að hún sé réttmæt.
í sumum borgum Norðurlanda koma þrjár þúsundir safn-
aðarmanna á einn prest, og þar sem prestur á fleirum að
þjóna en 5000, þykir horfa til vandræða. Hér í Reykjavík
hafa hin siðustu ár þrír þjóðkirkjuprestar þjónað dóm-
kirkjusöfnuðinum, en liann mun við síðasta manntal hafa
verið kominn hátt á þriðja tug þúsunda. I þessum söfnuði
er aðeins ein kirkja, sem i upphafi var hygð fyrir innan
við 1000 manns. Það þarf ekki að eyða orðum að því að
skýi-a það, að hér í Reykjavík er verkefni fyrir miklu fleiri
presta, hversu trúlega og samvizkusamlega sem prestar
þeir, sem fyrir eru, gegna skyldum sínum, eins og þeir