Kirkjuritið - 01.06.1945, Page 22

Kirkjuritið - 01.06.1945, Page 22
212 Prestastefnan. Júní-Júlí. Hann lauk stúdensprófi í Reykjavík vorið 1941 og embættis- prófi í guðfræði nú í vor með mjög góðri 1. einkunn. Hann er kvæntur Guðlaugu Einarsdóttur frá Akranesi. Leó Júlíusson cand. theol. er vígður verður að forfallalausu næstkomandi sunnudag til Hofsprestakalls í Álftafirði, sem sett- ur prestur þar. Leó Júlíusson. er fæddur 20. okt. 1919 i Bolungavík í Norður- tsafjarðarsýslu. Foreldrar: Júlíus Sigurðsson sjómaður og kona hans Anna Guðmundsdóttir. Hann lauk stúdentsprófi á Alcur- eyri 1941 og embættisprófi í guðfræði á þessu vori með góðri 1. einkunn. Alla þessa nýju starfsmenn kirkjunnar leyfi ég mér að bjóða innilega velkomna og óska þeim blessunar Guðs í hinu ábyrgð- armikla starfi þeirra. Breytingar á þjónustu einstakra prestakatla á synodusárinu liafa verið sem hér segir: 1. Séra Sigurður Haukdal sóknarprestur og' prófastur í Flat- ey á Bréiðafirði var 1. júni þ. á. skipaður sóknarprestur í Land- eyjaþingum í Rangárvallaprófastsdæmi, að afstaðinni lögmætri kosningu. 2. Séra Hálldór Kolheins sóknarprestur á Mælifetli i Skaga- firði, var skipaður sóknarprestur í Ofanleitisprestakalli í Rang- árvallaprófastsdæmi frá 1. júní, eftir að hafa verið þar lögiega kosinn. 3. Séra Sigurjón P. Árnason sóknarprestur í Ofanleitis- prestakalli var skipaður sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli i Reykjavík frá 1. janúar þ. á. að telja, að afstaðinni kosningu safnaðarins, sem varð ólögmæt. 4. Séra Jón Ár.ni Sigurðsson settur sóknarprestur að Stað á Reykjanesi i Barðastrandarprófastsdæmi hefir verið skipaður sóknarprestur þar frá 1. júní, að afstaðinni lögmætri kosningu. 5. Séra Trausti Pétursson settur sóknarprestur að Sauðlauks- dal í .Barðastrandarprófastsdæmi, hefir verið skipaður sóknar- prestur þar frá 1. júní, eftir að liafa htotið lögmæta kosningu. 6. Séra Guðmundur Guðmundsson settur sóknarprestur að Brjánslæk í Barðastrandarprófastsdæmi hefir verið skipaður sóknarprestur þar frá 1. júní, að afstaðinni lögmætli kosningu. 7. Séra Yngvi Þórir Árnason settur sóknarprestur að Árnesi i Strandaprófastsdæmi hefir verið skipaður sóknarprestur þar, að afstaðinni kosningu þann 15. okt. 1944, er var ólögmæt.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.