Kirkjuritið - 01.06.1945, Blaðsíða 43
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
233
Af öðrum samþykktuni má nefna:
1. Tillaga um að senda 3 prestlærða menn utan til þess að
kynnast starfsháttum kirkna erlendis.
2. Áskorun á kirkjustjórn, að greiða nú þegar af höndum
andvirði seldra prestsmata til kirknanna samkv. lögum þar um.
3. Mótmæli gegn þvi, að það mat, sem gert er ráð fyrir í
launalögunum nýju á heimatekjum, verði látið ná til prestsset-
urshúsa, þar sem um þau gilda sérstök lagaákvæði.
4. Ósk um að séra Þorsteini Briem prófasti verði greidd
full laun, ef hann neyðist til að láta af embætti sökum heilsu-
brests.
Að 'loknum umræðum ávarpaði biskup prestana, brýndi fyrir
þeim þá miklu ábyrgð, sem á þeim hvíldi í hinu mikilvæga
starfi, þakkaði þeim samstarfið á Prestastefnunni og árnaði þeim
góðrar heimkomu og blessunar Guðs í nútíð og framtíð.
Siðan var gengið inn i kapelluna, og las biskup ritningarkafla
og flutti hjartnæma bæn, en sáhnar voru sungnir á undan og
eftir. Að því búnu var Prestastefnunni slitið.
Um kvöldið sátu svo prestarnir boð á heimili biskupshjón-
anna.
Prestastefnan sendi heillaóska og árnaðarskeyti kirkjumála-
ráðherra Ernil Jónssyni, Stórstúku-þingi fslands, sem þá var
háð í Reykjavik, forseta evangelisk lútherska kirkjufélags Vest-
ur íslendinga, séra Haraldi Sigmar, forseta Sambandssafnaðar-
ins vestra séra Philip Péturssyni og prófessor dr. Richarði Beck
forseta Þjóðræknisfélagsins.
Henni bárust og þessi skeyti: frá kirkjumálaráðherra, stór-
templar i nafni Stórstúkuþings, forsetum lútherska kirkjufélags-
ins og Sainbandssafnaðanna vestra og prófessor Ásmundi Guð-
niundssyni, er staddur var sem fulltrúi islenzku kirkjunnar á
UO ára afmælisþingi lútherska kirkjufélagsins.
Einnig barst prestastefnunni einkar hlýlegt og fagurt ávarp
O’á prófessor Ricliard Beck.
Prestastefna þessi var eigi aðeins mjög fjölsótt, eins og áður
er sagt, heldur ríkti þar mikill áhugi um aukið starf kirkjunnar
á komandi tið. S. V.