Kirkjuritið - 01.06.1945, Blaðsíða 36
226
Prestastefnan.
Júní-Júlí.
Á öndverðu þessu ári urðu erkibiskupaskipti í Englandi og
tók dr. Geoffrey Fisher við því veglega starfi. Af þessu tilefni
sendi ég hinum nýkjörna erkibiskupi svolátandi skeyti:
„Fyrir hönd íslénzku kirkjunnar og fyrir mína hönd persónu-
lega sendi ég yður hjartanlegar árnaðaróskir. Megi Guð blessa
yður og kirkju yðar.“
Sigurge ir S ignrffss o.n.
Nokkru síðar barst mér bréf frá erkibiskupinum á þessa leið:
„í nafni drottins vors Jesú Krists, sendi ég mínum elskaða
bróður í Kristi, dr. Sigurgeir Sigurðssyni kveðju mína.
Uni leið og ég minnist með þakklæti þeirrar vináttu, sem fyr-
ir forsjón Guðs liefir um margra ára skeið verið milli kirkna
vorra, vil ég formlega tilkynna yður, að ég hefi tekizt á liendur
erkibiskupsembættið af Kantaraborg, sem yfirldskup Englands,
og sem eftirmaður liins ástsæla erkibiskups Williams, en lát lians
liarmar gjörvöll kristnin.
Eftir að hafa verið lögiega kjörinn til erkibiskupsdóms, og
eftir að kjör mitt hafði verið löglega staðfest af lians hátign Georg
konungi VI. samkv. þvi, sem fyrir er mælt í stjórnarskránni, tólc
ég við störfum 2. dag febrúar 1945, en var löglega settur inn í
embættið og á liinn fornfræga stól hins heilaga Ágústinusar
l'immtudaginn 19. apríl. Ég vona, að hin traustu bræðrabönd,
sem tengt hafa fyrirrennara okkar saman, megi lialdast og styrlcj-
ast okkar í millum, og bræðralagið í Kristni drottni vorum og
frelsara, sem samtengir kirkjur okkar, megi þróast og vaxa með
gagnkvæmum skilningi og samstarfi Guði til dýrðar og til efling-
ar ríkis lians hér á jörðu, sönnum friði til styrkingar og öllu
mannkyni til þroska og velfarnaðar.
Um leið og ég bið yður að minnast mín í bænum yðar, svo
og þeirrar kirkju, sem ég nú hefi verið kallaður til að veita
forstöðu, bið ég yður, prestastéttinni og þjóð yðar ríkulegrar
blessunar Guðs.
Yðar einlægur bróðir i Kristi.
Geoffreg Cantnar,
erkibiskup af Kantaraborg og höfuðbiskup Englands.
Friðurinn í Evrópu og þá ekki sízt endurheimt frelsi frænd-
þjóða vorra í Danmörku og Noregi eftir langa áþján, varð okk-
ur öllum og íslenzku þjóðinni í heild óblandið og mikið fagn-
aðarefni.
í tilefni þessara gleðilegu atburða sendi ég' hans liátign Krist-
jáni X. konungi samfagnaðarskeyti, og svo Sjálandsbiskupi