Kirkjuritið - 01.06.1945, Blaðsíða 35
Kirkjuritið.
Préstastefnan.
225
samveru þessara minningaríku daga og árna þeim allra lieilla og
blessunar í nútíð og framtíð.
Þessir fyrverandi og núverandi starfsmenn kirkjunnar liafa
átt merkisafmœli á synodusárinu, sem mér er kunnugt um:
1. Séra Einar Thorlacias fyrverandi prestur í Saurbæ a Hval-
fjarðarströnd varð áttræður þann 10. júlí f. á.
2. Séra Guðbrandur lijörnsson prófastur á átti 00 ára afmæli
þann 15. júlí f. á.
3. Séra Rnnólfur Magniis Jónsson fyrrum prestur að Stað i
Aöalvík varð áttræður þann 18. ágúst f. á.
4. Séra Páll Sigurðsson i Bolungarvík varð sextugur þann
20. ágúst f. á.
5. Séra Jónmundur Halldórsson prestur að Stað í Grunnavík
varð sjötugur 4. júlí f. á.
(i. Séra Jón lirandsso.n pr.ófastur í Kollafjarðarnesi varð 70
ára þann 24. april s. 1.
7. Séra Sigurður Norland prestur að Tjörn á Vatnsnesi átti
60 ára afmæli þann 10. marz s. 1.
8. Séra Lárus Arnórsson prestur í Miklabæ í Skagafirði varð
fimmtugur þann 29. april s. I.
9. Séra Matthias Eggertsson fyrrum prestur í Grímsey átti 80
ára afmæli þann 15. júní s. 1.
Færi ég þeim öllum innilegar heillaóskir mínar og árna þeim
blessunar Guðs. '
Þá vil ég geta þess, að islenzku kirkjunni hefir á þessu ári
verið boðin jiátttaka í tveiinur kirkjulegum þingum erlendis.
Hið Evangeliska Lúterska Kirkjufélag íslendinga í Vestur-
heimi heldur cinmitt þessa daga 00 ára afmælisþing sitt og minn-
ist jafnlramt 100 ára afmælis séra Jóns Bjarnasonar, eins hins
ágætasta kirkjuhöfðingja meðal Vestur-íslendinga á sinni tið.
Bauð kirkjufélagið islenzku kirkjunni að senda fulltrúa á þing
þetta og fór fyrir hennar hönd prófessor Ásmundur Guðniunds-
son formaður Prestafélags íslands.
Þá hefir og Fuglsang Damgaard Sjálandsbiskup boðið mér á
biskupafund í Kaupmannahöfn, er halda átti um næstu mánað-
armót. Voru þangað boðnir allir höfuðbiskupar Norðurlanda
svo og dönsku biskuparnir. Var ákveðið, að ég tækist þessa ferð
á hendur. En fyrir skömmu barst mér simskeyti l'rá biskupin-
um, þar sem hann tilkynnir, að fundi þessum sé frestað. Senni-
lega verður fundur þessi liáður síðar á sumrinu, en fundar-
timi liefir þó ekki verið ákveðinn.