Kirkjuritið - 01.06.1945, Blaðsíða 30
220
Prestastefnan.
Júní-Júli.
Háskólann, vil ég taka það fram, að menntamálaráðherra hefir
ekki enn skipað í stöðu þessa. Fh’ dráttur þessi að ýmsu ieyti
dálitið bagalegur, þar sem ekki hefir verið hægt að slá Borgar-
prestakalli upp til þessa. Á þvi leikur ekki vafi, að séra Björn
á tvímælalausa kröfu á því, að vera skipaður i þetta emhætti
nú þegar. Þar sem 80 prestar kirkjunnar liafa undirritað áskor-
un til Alþingis um stofnun þessa embættis, leyfi ég' mér að
skjóta því til prestastefnunnar hvort lienni sýnist ekki rétt, að
láta í ijósi vilja sinn um l>að, að lögunum verði framfylgt þegar
i stað.
Að lokum vil ég aðeins lauslega drepa á lögin um tvíritun
kirkjubóka. í þeim er ákveðið að tvírita skuii manntals- og
ministerialbækur frá 1. janúar 1945.
Ut af fyrir sig er ekki nema gott um það að segja, að kirkju-
bækur séu tvíritaðar og að héraðsbókasöfnin fái annað eintak-
ið, því þær geyma ómetanlegan fróðleik. Hinsvegar virðist svo,
að málið hafi naumazt fengið nægilegan undirbúning áður en
það var afgreitt. .Bersýnilegt var, að prentun slíkra bóka og band
hlaut að taka mikinn tíma, enda mun prcntun þeirra ekki Itafin
enn, þótt lögin hafi átt að vera komin til framkvæmda fyrir
hálfu ári. Þessi prentun kostar og óhemju mikið fé, þar sem
hver bók innbundin mun kosta nú fullar 100 krónur. Þá er og
óleyst það spursmál, hver greiða eigi það starf að afrita bæk-
urnar. Það starf er að vísu í lögunum ætlað sóknarnefndunum,
en hinsvegar virðist það liggja í augum uppi, að eigi sé hægt
að skylda sóknarnefndirnar (il þess að vinna það verk endur-
gjaldslaust, en til launa fyrir þetta starf er ekkert fé veitt. Virð-
ist mér eigi koma til mála, að þetta verði greitt af sjóði kirkn-
anna og það því siður, þar sem bækurnar eiga, er skrifaðar hafa
verið, hvorki að vera í eigu né umsjá safnaðanna. Ég hefi vakið
athygli ráðuneytisins á þessum atriðum, en endanleg svör hafa
ekki borizt, og lögin ekki komið til framkvæmda enn.
Söngmálastjóri þjóökirkjunnar, Sigarður Birkis, hefir enn
sem undanfarið starfað að stofnun kirkjukóra og bættum safn-
aðarsöng, og verður það. starf umfangsmeira með hverju ári
sem líður.
Eins og á síðastliðnu synodusári, var honum um tíma ráðinn
aðstoðarmaður við starfið, og þóknun til hans greidd úr Presta-
kallasjóði. Starfaði aðstoðarmaðurinn, Kjartan Sigurjónsson,
söngvari, í tvo mánuði á vegum söngmálastjórans og var starf
hans af hendi leyst með ágætum.
Á síðastliðnu hausti sigldi Kjartan til Englands til framhalds-