Kirkjuritið - 01.06.1945, Blaðsíða 28
218
Prestastefnan.
Júní-Júli.
og byggja yfir þcssa p'resta sæmileg íbúðarhús. En þangað til
það verður gjört virðist öl 1 sanngirni mæla með ])ví, að liúsa-
leigustyrkurinn til þeirra haldist óbreyttur. Yið það að styrkur
])essi félli niður, mundi skapast mjög tilfinnanlegt misræmi milli
þeirra presta í bænum, sem húsnæðislausir eru og hinna, sem
])egai- hafa fengið sæmileg og jafnvel prýðileg íbúðarhús frá því
opinbera. Jafnvel þótt eftirgjald prestsseturshúsa kynni að verða
nokkuð hækkað frá því sem nú er, sem þó er engan veginn víst,
verður því ckld neitað að stórfelldur aðstöðumunur er þeirra
presta, er fengið hafa prestsseturshús og hinna, sem enn hýrast
i ófullkomnum og þröngum leiguhúsakynnum.
3. Heimatekjur presta.
í 34. gr. launalaganna er gert ráð fyrir, að yfirskattanefndir
meti árlega hlunnindi þau, sem gohlin eru í fríðu.
Við þetta sé ég ekkert að athuga, hvað prestana snertir, að
þvi er til jarðnæðis og lilunninda tekur. Aftur á móti leyfi ég
mér að leggja til, ag prestsseturshúsin verði undanþegin þessu
ákvæði, að minnsta kosti fyrst um sinn.
Um þau gilda sérstök lög, hæði um byggingastyrk þeirra,
byggingalán, árlegt afgjald, viðhaldsskyldu, greiðslu brunabóta-
gjalds, fyrningarsjóðsgjald o. s. frv. Virðist því mikið vanda-
verk að meta eftirgjald eftir þessi hús réttilega, og varla von að
yfirskattanefndir geti haft fullan kunnugleik á þessu eða að
mat þeirra yrði í fullu samræmi í liinum ýmsu umdæmum.
Tel ég hitt réttara, að endurskoðuð yrðu rækilega lögin um
hýsingu prestssetra, og sett síðan ný löggjöf um það efni. Mun
og sérstakri stjórnskipaðri nefnd, Skipulagsnefnd prestssetra
liafa meðal annars verið falin slik endurskoðun, og virðist mér
rétt að híða álits hennar um þessi efni, áður en ákvarðanir eru
teknar um breytingar á núverandi gjaidi eftir prestsseturshús
landsins.
4. Laun vígslubiskiipsins ú Akureyri.
Þar sem vígslubiskupinn á Akureyri er nú jafnframt prófastur
í einu stærsta prófastsdæmi landsins, virðist ekki lijá þvi verða
komist að greiða lionum sérstaklega fyrir það starf.
Vigslubiskupslaunin eru kr. 9000.00 á ári. Hámarkslaun presta
eru kr. 84000.00 en prófastlaun kr. 9000.00. Sýnist þvi rétt, að
við vígslubiskupslaunin kr. 9000.00 verði bætt prófastslaunum,
sem miðuð við bámarksl. presta eru kr. 9000.00-í-8400.00 eða kr.
000.00. Ættu þá laun vígslubiskupsins á Akureyri, sem jafnframt
er prófastur, að vera kr. 9000.00 + kr. 000.00 eða kr. 9000.00.