Kirkjuritið - 01.06.1945, Page 25

Kirkjuritið - 01.06.1945, Page 25
Kirkjuritið. Prestastefnan. 215 Síðasta Alþingi veitti allmikið ríflegri styrk til bygginga prests- setiirshúsa og aðgerða eldri prestssetra en undanfarið. Var sann- ariega brýn þörf fyrir þessa fjárveitingu, því bygging margra prestssetranna er í hörmulegu ástandi, og á það áreiðanlega sinn stóra þált i þvi iive mörg prestaköll standa nú oveitt og hafa staðið undanfarin ár. En j)ó að veitt hafi verið %milljón tii byggingar prestssetra á þessu ári, segir j)að í raun ogi veru lítið til þess að bæta úr hinni miklu þörf nýbygginga, enda er kostn- aðurinn við slikar bygingar nú orðinn 5—ö faldur miðað við árin fyrir styrjöldina. En haldist þessi fjárveiting um næstu 5—6 ár og dýrtíð vaxi ekki frá því, sem nú er, er sennilegt, að að þeim tíma liðnum, gæti bygging á flestum prestssetrum landsins verið komin í nokkurnveginn viðunandi horf. Bygging prestssetursins í Bjarnanesi, sem hafin var á síð- asta ári, mun nú vera langt komin. Ennfremur er í smíðum prestsseturshús í Ólafsvík. Á þessu ári hefir kirkjustjórnin á- kveðið að hefja smiði ö prestseturshúsa og eru þau þessi: 1. Að Torfastöðum í Árnesprófastsdæmi, en þar brann prests- setrið fyrir sköminu til kaldra kola, svo sem kunnugt er. 2. Að Hvammi í Dölum. 3. Að Kvennabrekku í Dölum. 4. Að Miklabæ i Skagafirði. ö. Að Valþjófsstað i Norður-Múlaprófastsdæmi, ö. Prestsseturshús í Reykjavik. Ennfremur mun svo landbúnaðarráðuneytið hefja smíði prests- seturshúss að Hvanneyri í Borgarfirði, samkvæmt þar um gcrð- um samningi, er prestssetrið Hestur var afhent ráðuneytinu fyr- lr tilraunabú í þágu landbúnaðarins, og hefi ég áður. á þetta minnzt í öðru sambandi. Þetta er að vísu stærra átak en gert hefir verið i þessuin mál- um áður, cn því miður eru allar horfur á, að hið veitta fé muni pkki nægja til þessara framkvæmda og verði þá að taka nokkuð uf væntanlegri fjárveitingu næsta árs i þessu skyni. Enn er þess að geta, að samkvæmt eindregnum óskum sókn- arprestsins á Seyðisfirði hefir kirkjustjórnin fallizt á að selja "i® gamla prestsseturshús þar, en kaupa í þess stað annað hús og nokkru minna handa prestinum. Á síðastliðnu ári skipaði kirkjumálaráðherra þriggja manna nefnd til þess að athuga prestssetur landsins og gera tillögur um framtíðarskipulagningu þeirra o. fl. Nefndina skipa: Gústav A. Jónasson skrifstofustjóri, formaður, séra Sveinn Víkingur hiskupsritari og séra Þorsteinn Briem prófastur á Akranesi. Hefir ncfndin þegar viðað að sér nokkrum gögnum í málinu og mun

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.