Kirkjuritið - 01.06.1945, Page 40
230
Prestastelnan.
Júní-Júli.
5. Að feia biskupi að athuga aðrar tiltækilegar «g hagkvæm-
ar leiðir til fjáröflunar.
Krislindómsfræðsla i skólum.
Prestastefna íslands teiur það höfuðnauðsyn, að efla kristi-
leg áhrif «g auka fræðslu í trúarlegum og andlegum efnum í
öllum skólum landsins, æðri sem lægri, og að sem hæfastirmenn
veljist jafnan lil þeirra starfa, svo og að fyrirlestrar um trú og
siðgæði verði öðru hvoru fluttir í æðri skólum og alþýðuskól-
um landsins.-
Vill prestastefnan sérstaklega leggja áherzlu á þetta nú í sam-
handi við endurskoðun þá, sem nú fer fram á skólakerfi lands-
ins, og þær breytingar, sem væntanlega verða lögfestar í þeim
efnum innan skanuns.
Telur Prestastefnan, að íhlutun kirkjunnar um kristindóms-
kennslu í skólum og val manna til þeirra starfa eigi að vaxa
að verulegum mun frá því, sem nú er, og felur biskupi að ræða
þessi mál við fræðslumálastjórnina.
Kirkja (>(/ útvarp.
Prestastefna íslands telur æskilegt og heppilegt, að útvarps-
messur og flutningur erinda í útvarp um trúarleg efni verði
framvegis skipulagt af hiskupi í samráði við útvarpsráð, og skor-
ar á kirkjustjórnina að hlutast lil um, að slík lausn málanna
megi takast sem fyrst.
Hlé'varð á umræðum milli kl. I og 4 um daginn.
Þá lagði biskup fram messuskýrslur ársins 1944. Messur voru
alls á landinu 4938, þar af 290 barnaguðsþjónustur. Siðastliðiö
ár voru messugerðir alls 8777. Altarisgcstir voru taldir (>2(i7 en
9012 árið á undan.
Einnig framlögð og samþykkt skrá yfir úthlutun styrktar-
fjár til fátækra presta, er látið liafa al' embætti og prestsekkna.
AUs var úthlutað kr. 28075.00 lil 10 fv. presta og 44 prestsekkna.
Þá skýrði formaður barnaheimilisnefndar þjóðkirkjunnar,
séra Hálfdan Helgason prófastur, frá störfum nefndarinnar á
árinu. Alls hafði safnast á árinu kr 8618.75, en eign í sjóði í
árslok nam kr. 24012,71
Kl. 8.30 um kvöldið flutti sér Sigurður Pálsson í Hraungerði
erindi í Dómkirkjunni á vegum prestastefnunnar, er hann
nefndi: Messan í lútherskum sið. Erindinu var útvarpað.
Föstudaginn 22. júní liófust fundir með morgunbæn í bá-
skólakapellunni, er séra Jón Auðuns flutti.
Eftir það hófust framhaldsumræður um starfshætti kirkj-
unnar svo og nokkur önnur mál.