Kirkjuritið - 01.08.1955, Síða 26
KIRKJURITIÐ
312
Hefir séra Sigurði Norland verið falið að þjóna því.
11. Grímseyjarprestakall í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Því þjón-
ar séra Pétur Sigurgeirsson prestur á Akureyri.
12. Sauðanessprestakall í Norður-Þingeyjarprófastsdæmi. Hefir
séra Þórði Oddgeirssyni verið falið að þjóna því áfram
fyrst um sinn.
13. Vatnsendaprestakall í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi. Því
þjóna prófasturinn á Húsavík og sóknarprestarnir að
Grenjaðarstað og Skútustöðum.
14. Hofsóssprestakall í Skagafjarðarprófastsdæmi. Því þjónar
settur prestur, séra Árni Sigurðsson.
í þessum prestaköllum flestum eru prestsseturshús léleg eða
engin. Aðeins góð í þremur þeirra. Sennilegt er, að skólahús-
bygging hefjist í sumar á Hrafnseyri.
Á synodusárinu vígði ég Gilsbakkakirkju í Hvítársíðu 4. júlí,
Hofskirkju í Örœfum 11. júlí, kór samkomusálar á Elliheimil-
inu Grund 6. febrúar, kapellu í Hnífsdal 8. apríl og Ásólfs-
skálakirkju undir Eyjafjöllum 22. maí. Þessar vígslur hafa
verið mér mikið gleðiefni sökum þess, hve kirkjur þessar eru
prýðileg guðshús og hlutaðeigendur allir hafa verið samtaka
um að vanda sem bezt til þeirra. Vil ég flytja söfnuðunum
þakkir fyrir áhuga þeirra og mikil framlög og frábærar við-
tökur, sem ég hefi átt að fagna. Fátt er gleðilegra í kirkju-
lífi voru en ást safnaðanna á kirkjum þeirra og hve mikið
margir leggja fram til þess að prýða þær. Gæti ég nefnt mörg
dæmi þess, þótt ég láti þau að sinni hvíla í þagnargildi yfir-
leitt. Þannig hefir yfirsmiður við kirkjubyggingu meðal annars
gefið hálf vinnulaun sín og söfnuður 128 gjaldskyldra manna
gefið 7000 vinnustundir. Smíði ýmissa kirkna er nú langt kom-
in, svo sem Selfosskirkju, Staðarhraunskirkju og Svalbarðs-
kirkju, og smíði margra fleiri miðar vel áfram eins og Nes-
kirkju, Hallgrímskirkju í Saurbæ, Borgarnesskirkju, Prests-
bakkakirkju í Hrútafirði og kapellu að Ytri-Sólheimum. Víða
annars staðar er kirkjubygging hafin við stórhug og myndar-
brag. Hinn almenni kirkjusjóður hefir á árinu 1954 veitt lán
til bygginga og viðhalds kirkna miklu meiri en nokkru sinni
fyrr, eða alls 603 þúsund kr. Gjafir og áheit á Strandarkirkju
valda mestu um það, að þetta hefir verið unnt, en þau nema