Kirkjuritið - 01.08.1955, Blaðsíða 29
PRESTASTEFNAN 1955
315
hann og sambandið vinna fyrir kristni og kirkju landsins, er
hið ágætasta, og má enn mikils af vænta á komandi tímum.
Er markmiðið það, að kirkjusöngur á íslandi verði sem al-
mennastur og beztur og til blessunar fyrir allt guðsþjónustu-
lífið.
Eins og frá hefir verið skýrt í Kirkjuritinu, var kirkjulegur
sumarskóli haldinn að Löngumýri í Skagafirði og stóð hann
í tvo mánuði. Skólastjórn hafði með höndum Ingibjörg Jó-
hannsdóttir, forstöðukona húsmæðraskólans. En aðalkennari
var Ólafur Skúlason, sem þá var guðfræðinemi. Hann kenndi
kristinfræði og annaðist morgunbænir kvölds og morgna. Skól-
ann sóttu 32 stúlkur. Skólalíf var heilbrigt og gott og með mikl-
um gleðiblæ. Skólinn á að halda áfram í sumar, og hefir Ásgeir
Ingibergsson, guðfræðinemi, verið ráðinn kennari í kristnum
fræðum.
Hinn almenni bænadagur var haldinn sem fyrr 5. sunnudag
eftir páska. Virðist þjóðinni þykja mjög vænt um þennan
dag, og mun þá kirkjusókn víða vera góð. Þó er eins og sum-
um sé enn óljóst, að vér höldum helgan þennan bænadag,
því að ég hefi fengið bréf, þar sem skorað er á mig að taka
upp hér á landi sérstakan bænadag. Markið á að vera það,
að bænagjörð fari fram þennan dag í hverri kirkju og á
hverju heimili.
Ég vísiteraði Norður-ísaf jarðar og Vestur-ísafjarðarprófasts-
dæmi dagana 24. júlí til 10. ágúst, og vísa í því sambandi til
skýrslu minnar í jólahefti Kirkjuritsins. Ætla ég ekki að
endurtaka hér neitt, sem þar stendur. Aðeins vil ég þakka
af alhug frábærar viðtökur og gestrisni bæði presta og safn-
aða.
Seinna hefi ég svo vísiterað að auk nokkrar kirkjur í Kjalar-
nessprófastsdæmi, en fyrirrennari minn hafði ekki lokið við
að vísitera þar. Landakirkju í Vestmannaeyjum vísiteraði ég
laugardag og sunnudag 12. og 13. febrúar. Kom ég þar einnig
í sjúkrahús, elliheimili og skóla og ávarpaði nemendur. Ferðin
stóð lengi yfir sökum óhagstæðra flugsamgangna, alls í 6
daga.
Bessastaðakirkju vísiteraði ég sunnudaginn 27. febrúar, Lága-