Kirkjuritið - 01.08.1955, Side 45
AÐALFUNDUR PRESTAFÉLAGS ÍSLANDS
331
Arnórsson, séra Jónas Gíslason, séra Pétur Oddsson, séra
Magnús Guðmundsson, séra Þórir Stephensen, séra Björn Jóns-
son, séra Helgi Sveinsson, séra Kristján Róbertsson, séra Er-
lendur Sigmundsson, en frummælandi svaraði ýmsu. Ályktanir,
sem gerðar voru, má lesa hér á eftir.
Formaður las bréf frá Áfengisvarnarnefnd ríkisins um stofn-
un landssambands bindindismanna. Urðu um það nokkrar um-
ræður. En á fundi síðar um kvöldið var samþykkt, að Presta-
félagið gerðist aðili að slíkum samtökum og voru kosnir tveir
fulltrúar, þeir séra Magnús Guðmundsson og séra Björn Jóns-
son, en til vara próf. Björn Magnússon og séra Jón Þorvarðs-
son.
Úr stjórn Prestafélagsins áttu að ganga þeir séra Sveinbjörn
Högnason og séra Sigurjón Þ. Árnason. Kosnir voru: Séra
Sveinbjörn Högnason og séra Jón Þorvarðsson, en varamenn
séra Sigurjón Þ. Árnason og Þórir Kr. Þórðarson dósent.
Þá voru kosnir fulltrúar á þing B.S.R.B. þeir séra Jakob
Jónsson, séra Gunnar Árnason, séra Kristján Bjarnason og séra
Jónas Gíslason, en varamenn séra Bjarni Sigurðsson, séra Helgi
Sveinsson, séra Garðar Þorsteinsson og séra Óskar J. Þorláksson.
Um „Nefndarálit laganefndar“ urðu allmiklar umræður, og
voru samþykktar ýmsar breytingar á lögum Prestafélagsins.
Þar sem gagnslítið er að heyra þær án þess að hafa lögin í
höndum og lögin svo breytt verða vafalaust send félagsmönn-
um, verða breytingarnar ekki birtar hér. En þær voru einkum
í þessu fólgnar:
1. Félagsdeildirnar fá nokkra íhlutun um ákvarðanir félags-
stjórnar.
2. Fulltrúaráði er komið á fót, þar sem formenn félags-
deildanna eiga sæti ásamt stjórn félagsins.
3. Lög félagsdeilda eiga að vera samræmd lögum félagsins,
og skal bera mikilsvarðandi ákvarðanir félagsdeilda undir stjórn
félagsins.
4. Félagsmenn eru skyldir að taka kosningu í stjórn og einu
sinni endurkjöri.
5. Árstillag er ákveðið kr. 125 og 25.
Að fundarlokum ávarpaði formaður félagsmenn.
Fundi var slitið á miðnætti, eftir að dr. Bjarni Jónsson hafði
flutt bæn í kapellunni.