Kirkjuritið - 01.01.1957, Page 8
KOMI RÍKI ÞITT
„Komi ríki þitt“. Þessi þrjú bænarorð í guðspjalli nýársdags-
ins hefi ég valið oss til íhugunar á morgni hans.
Vér skulum heilsa með þeim fyrstu nýársgeislum Guðs sólar.
Það er hann, sem ártalið er miðað við, Jesús Kristur, er svo
baðst fyrir í djúpu samræmi við boðskap sinn: 'Tíminn er fullnað-
ur og Guðs riki er nálægt. Vér eigum frásögn um hann, þar sem
hann er á bæn úti í fegurð náttúrunnar og einn af lærisveinum
hans andvarpar til hans: Herra, kenn þú oss að biðja. Þá kenndi
hann þeim bænina „Faðir vor“. Hvern dag skyldu þeir biðja eins
og hann föðurinn á himnum: Komi ríki þitt.
Guðfræðinga greinir á um það, við hvað Jesús hafi átt með
þessum orðum. Margir þeirra ætla, að hann hafi í huga Guðs
ríki við heimsendi og biðji um komu þess með þeim hætti. Hann
sjái það rísa úti við hafsbrún eilífðarinnar eins og blámóðu-
strönd í ljóma morgunroðans, og þangað muni mennimir um síðir
lenda við lok tímanna. Handan hörmunga jarðarinnar bíði ei-
lífðarríkið. Þangað skal horfa í bænarhug og þreyja með þol-
gæði. Að lokum kemur Guðs ríkið, og tárin verða þerruð af
augum mannanna. Hvenær það verður, veit enginn maður, en
þó er þeim rétt að virða fyrir sér tákn tímanna og spyrja: Vöku-
maður, hvað líður nóttunni? Guðsríkið ókomna er framtíðar
— eilífðar hugsjónin mikla.
Aðrir leggja þann skilning í orð Jesú, að Guðs ríkið eigi að
verða veruleiki hér á vorri jörð. Þeir skírskota til Guðs ríkis
kenningar hans. Hann segir jafnskjótt sem hann hefur hana,
að Guðs ríkið sé komið í nánd. Seinna segir hann, að Guðs ríki
sé þegar komið. Hann bendir á máttarverkin, sem hann vinnur,
og bætir svo við þeim orðum, að ef hann framkvæmi þau með
fingri Guðs, þá sé Guðs ríki komið til mannanna. Að hinu sama
fúta ýmsar líkingar hans og dæmisögur. Sæði Guðs ríkis grær