Kirkjuritið - 01.01.1957, Síða 9
KOMI RIKI ÞITT
3
°g vex. Þá er hann er spurður, hvenær Guðs ríki muni koma,
svarar hann berum orðum: „Guðs ríki kemur ekki þannig, að
a því beri, og ekki munu menn geta sagt: Sjá, það er hér, eða
það er þar; því sjá, Guðs ríki er mitt á meðal yðar“. í Biblíu-
þýðingu vorri eru orðin þýdd: „Sjá, Guðs ríki er hið innra í yð-
Ur“. En það ber að sama brunni: Guðs ríki, sem er hið innra
nieð mönnunum, er þegar komið.
Þessi skilningur á Guðs ríkis kenningu Jesú ristir dýpra en
hinn. Hann miðast við orð hans sjálfs. Ef vér leitumst við að
láta sökkvast í djúp „Faðir vors“, þá sjáum vér þar þegar út-
skýringu og endurtekningu bænarinnar: „Komi ríki þitt“ í næstu
bæn: „Verði vilji þinn svo á jörðu sem á hirnni". Guðs ríki kem-
ur hingað á jörð að sama skapi sem Guðs vilji verður hér. Það
er ríkið, þar sem vilji hans ræður. Önnur og þriðja bæn „Faðir
vors“ eru í raun og veru sama bænin, enda stendur aðeins önn-
Ur þeirra í Lúkasarguðspjalli.
En verður þetta nokkum tíma? Kemur Guðs ríki í raun og
Veru hingað á jörð, þannig að Guðs vilji verði svo á jörðu sem
a himni? Hljóta mennirnir ekki að hika í þeirri trú? Sýnir sögu-
þróunin þroska mannkynsins á braut Guðs ríkis? Ræður þar
ekki mestu taumlaust kapphlaup um völd og eignir, svo að menn-
rrnir eru nú komnir út á fremstu nöf sjálfstortímingar? Getur
ekki dunið yfir þá og þegar þriðja heimsstyrjöldin með skelfi-
íegri
ógnum en unnt sé að gjöra sér í hugarlund?
Já, öll erum vér harmi lostin vegna þeirra atburða, sem gerzt
^afa á síðustu tímum, yfir kúgun og ofbeldi gagnvart lítilmögn-
unum, lífi og frelsi bæði einstaklinga og þjóða. Vér heyrum
stlga upp neyðarkvein þúsunda líkt og Jeremía forðum: „Dauð-
lnn er stiginn upp í glugga vora, kominn inn í hallir vorar, til
þess að afmá börnin af götunum, unglingana af torgunum. Og
líkin af mönnunum liggja eins og hlöss á velli, eins og kornbundin
að baki komskurðarmanninum“. Hinn slyngi sláttumaður hefir
enn gerzt ærið mikilvirkur og slegið allt, hvað fyrir er.
Eá vonirnar um komu Guðs ríkis hingað á jörð staðizt storm-
ana? Eru þær reistar á bjargi, sem bifast hvergi? Riða þær ekki
til falls?