Kirkjuritið - 01.01.1957, Qupperneq 12
KIRK JURITIÐ
Stígum sporið til þeirra trúarr og hvikum eigi frá henni hvorki
í lífi né dauða.
Þeirrar trúar hefir aldrei verið meiri þörf en nú. Hún ein veitir
aflið til sigurs.
Þess vegna verður nú að stíga upp frá brjóstum allra kristinna
manna um víða veröld nýársbænin til Guðs: Komi ríki þitt. Og
í krafti hennar eigum vér að sameinast um sókn fyrir friði á
jörðu.
Vér verðum að hætta að spyrja um kirkjudeildirnar, kaþólskra,
grískkaþólskra, mótmælenda eða annarra, heldur breyta eftir
orðum Krists: Allir eiga þeir að vera eitt. Hvar sem kristnir
menn eru, þá verða þeir að vinna að einu marki, allir saman. Og
í því lífi og starfi má eigi víkja, hversu mikið ofurefli sem virð-
ist við að stríða.
Vér vitum um samtök kirknanna, sem þegar eru hafin í heim-
inum: Lúterska heimssambandið og Alkirkjuráðið, sem kirkja
lands vors tekur einnig þátt í. Á sumri komanda á að heyja eitt
hinna miklu heimsþinga, og þá mun gengið undir strangt próf.
Nú nægir ekki það eitt, að kirkjur þjóðanna standi saman, held-
ur verða þær að vaxa saman í eina heild, svo að ekki greini sund-
ur landamæri, tunga né þjóðerni. Þær verða að segja einum
rómi við þá valdhafa, er leiða ofbeldi, kúgun og grimmdarverk
yfir heiminn: Snúið við. Krjúpið að fótum friðarboðans. Ella skal
yður verða sagt upp hlýðni og hollustu, því að framar ber að
hlýða Guði en mönnum. Vér munum þá berjast við yður með
þeim vopnum, sem vér eigum yfir að ráða og máttugust eru
allra, vopnum kærleikans, sjálfsfórnarinnar. Þannig bauð Krist-
ur lærisveinum sínum að leggja líf sitt við: Sá, sem týnir lífi sínu,
mun finna það.
í öndverðu var kirkjan píslarvættiskirkja í heiminum. Hún á
að verða það aftur. Einstakir leiðtogar hennar hafa þegar orðið
píslarvottar á þessum tímum, þolað fjötur, fangelsi, pyndingar,
tjón á heilsu og lífi. En allir hinir eiga og að veita þeim fylgd.
Meiður frelsis og friðar mun vaxa, vökvaður blóði. Sá einn, er
leggur höndina á plóginn og lítur ekki aftur, þótt það kosti liann
lífið, megnar að greiða Guðs ríkinu veg.