Kirkjuritið - 01.01.1957, Qupperneq 14

Kirkjuritið - 01.01.1957, Qupperneq 14
8 KIRKJURITIÐ Og þegar morgunsólin roðar austurloftið og rennur upp, hvað liggur þá fyrir annað en að horfa við geislum hennar? Eins og blómið, sem lyftir krónu við dagsljósinu, skrýðist fegurstu litum, þannig ummyndast sá til líkingar við Krist, er gefst honurn á vald, — auðgast að því, sem er fagurt, satt, gott og kærleiksríkt. Að sama skapi sem vér gjörum það, kemur Guðs ríki til vor og íslenzka þjóðin verður hans þjóð. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. Burt með allt hugarvíl. Búum í þess stað Kristi rúm í hjörtunum. Þar ljómi innst birta hans. Guð hefði ekki skapað mannkynið, ef hann vissi, að það myndi að lokum deyða sig sjálft. Nei. Hann hefir séð fyrir sigur þess í krafti sonarins elskaða. Vilji hans verður svo á jörðu sem á himni. ' Guð, þér sé eilíf þökk og dýrð. Komi ríki þitt. Gleðilegt nýár í Jesú nafni. ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON. Stjórn Hins íslenzka Biblíuiélags þakkar afj alhug ágczlar undir- lektir manna undir það að ger- asl félagar þess. £ru þœr félag- inu bezti shjrkur. Asmundur Quðmundsson. ____________________________________

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.