Kirkjuritið - 01.01.1957, Qupperneq 19

Kirkjuritið - 01.01.1957, Qupperneq 19
PISTLAR 13 það kemur á daginn, að kristnin lifir í landinu, og virðist alls staðar austan jámtjalds sem elfa undir klaka. Og nú er sú elfa að ryðja sig. Skýiing hugtaka. Hugtök, hugmyndir, hugsjónir. Þetta hefir allt mikil áhrif í daglegu lífi. En það er eitthvað annað en að allir leggi sömu merkingu í sama nafnið. Sérstaklega þegar um hugtökin er að ræða. Stundum nota menn hin og þessi hugtök, án þess að gera sér ljóst, hvað í þeim felst, líkt og er um sum eldgömul orðtök. Stundum leggja menn nýjar merkingar í hugtök í ákveðnum tilgangi. Jafnvel um beinar hugtakafalsanir getur verið að ræða. Sem dæmi um það, hvernig hugtök, sem um langan aldur hafa haft líka eða sams konar merkingu í hugum vestrænna manna, geta skyndilega verið túlkuð á ólíkan hátt, má nefna orðið frelsi vestan og austan járntjalds nú á dögum. Af þessu leiðir, að skýr- ing hugtaka er næsta þörf. Mér kom þetta m. a. í hug, er ég las fallegt ávarp, sem mennta- málaráðherrann hélt í listamannaklúbbnum nýlega. Hann lagði þar með réttu mikla áherzlu á gildi listanna. Taldi jafnvel, að aldrei hefði þeirra beðið meira hlutverk en nú í landinu, mundi ekkert vera meiri menningarvaki og því bráð nauðsyn að styrkja sem bezt alla listamenn. En við þetta gat ég ekki varizt þessari spurningu: Hvað er list, og hver er listamaður? Það er nokkuð óskýrt hugtak, að því er vh ðist. í viðtali segir Davíð frá Fagra- skógi á þá leið, að Æru-Tobbi sé frumlegasta og bezta atom- skáldið, sem enn hafi fæðzt á íslandi. Og mér kom í hug samtal, sem eg átti við tvo tónlistarmenn og tónskáld nýlega. Hvergi er vanþekking mín öllu meiri en á því sviði. Þess vegna leitaði ég fræðslu. Ég spurði meðal annars á þá leið, hvort lag eða tónverk lyti ekki ákveðnum lögum. Hvort ekki yrði að gæta einhvers tóna- samræmis við samningu tónsmíða og þar fram eftir götunum. Mér skildist — og ég rangfæri hér ekkert viljandi, — að þessi sldln-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.