Kirkjuritið - 01.01.1957, Blaðsíða 21
PISTLAH
15
ölvaðir menn fáist ekki við akstur og þyngja viðurlögin við slík-
um brotum.
Almenningsálitið má ekki lengur afsaka slys og skemmdar-
verk með því að aðilar hafi verið ölvaðir. Nýlega var framið
eitthvert skaðsamlegasta skemmdarverk, sem unnið hefir verið
hérlendis, er skemmdar voru nokkrar flugvélar í flugskýli. Hefði
þetta geta leitt til manntjóns. Eitt dagblaðið segir nýlega um
þetta. (Tíminn 4. des.): „Spellvirkinn er ungur maður, nítján
ára að aldri, og hefir hann játað verknaðinn, en kveðst jafnframt
hafa verið undir áhrifum víns.“ Síðan ekki söguna meir. Þetta
finnst mér þjóðhættulegur frásagnarmáti.
Oss kirkjunnar mönnum er skylt að fylgjast vel með þessum
raálum og ljá yfirvöldunum og öðrum aðilum lið til að draga
úr hinni geigvænlegu slysahættu, sem nú má kalla að sé á hverj-
um akfærum vegi um landið allt.
Hver veit. . .?
Ekki fyrir alls löngu sá ég kvikmynd, er gerð hefir verið að
tilstuðlun Gideonsfélagsins. Ólafur Ólafsson kristniboði sýndi
hana í fjölmennum skóla. Þar var m. a. skýrt, hve sólkerfin eru
otal mörg og ómælanlega víð. í dag berast geislar til jarðarinn-
ar> sem hafa verið milljónir ára á leiðinni frá upptökum sínum.
Frammi fyrir þessu undri verður manni ljóst, hve lítið vér vit-
Um enn um tilveruna. Og gleði vaknar yfir því, hve enn er margt
eftir að sjá.
°g enn er slík umhugsun oss hvöt til að fara að dæmi feðra
vorra og rannsaka betur ritningarnar en vér gerum. Þær birta
0SS marga opinberun um lögmál lífsins á mörgum sviðum. Lög-
mál, sem vísindin eru sí og æ að staðfesta.
Enn varðar Biblían hinn vanrataða lífsveg betur en nokkur
skoli til þessa dags.
Gunnar Árnason.