Kirkjuritið - 01.01.1957, Page 31
KIRKJUR Á ISLANDI AÐ FORNU OG NYJU
25
fleiri en almennt hefir talið verið. Torfkirkjumar voru upphaf-
lega tjaldaðar innan með dúkum, en seinna varð algengast, að
þær voru þiljaðar innan og með fjalagólfi. Nú eru aðeins þrjár
torfkirkjur eftir: að Hofi í Öræfum, Víðimýri og Saurbæ í Eyja-
firði. Enda þótt tími torfkirknanna og torfbæjanna sé nú liðinn
°g komi aldrei aftur, þá verður því ekki neitað, að þessi hús áttu
sína fegurð og fóru vel í íslenzku landslagi.
Þegar kemur fram yfir aldamótin 1800 taka timburkirkjurnar
fyrir alvöru að útrýma torfkirkjunum, og heldur þeirri þróun á-
fram fram á fyrsta tug tuttugustu aldarinnar. Eru enn rúmlega
200 timburkirkj ur í landinu, flestar gamlar og margar harla hrör-
legar. Þó eru til laglegar timburkirkjur og sumar dálítið sér-
kennilegar að stíl. Má þar nefna Húsavíkurkirkju, sem er fögur
^irkja, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni húsameistara. Eru og til
nokkrar smærri kirkjur byggðar í þeim sama stíl.
Elzta steinkirkja hér á landi og um leið elzta kirkjan er dóm-
kirkjan á Hólum, er Gísli biskup Magnússon lét gera úr höggnu
grjóti úr fjallinu fyrir ofan bæinn. Var hún vígð 20. nóv. 1763.
Aðrar elztu kirkjur landsins eru: Dómkirkjan í Reykjavík, Við-
eyjarkirkja og Bessastaðakirkja. Nokkrar fleiri kirkjur voru og
^yggðar úr tilhöggnum steini á síðari hluta 19. aldar, svo sem
a Þingeyrum, og einnig hér suðvestan lands. Eftir 1910 hefst svo
Þygging kirkna úr steinsteypu og hafa flestallar kirkjur reistar
eftir þann tíma verið gerðar úr því efni. Eru þær kirkjur nú
rumlega 70 talsins, ef með eru taldar þær, sem nú eru í bygg-
ingu og ekki enn vígðar.
^msar af þessum kirkjum eru hin glæsilegustu hús. Má þar
uefna: Akureyrarkirkju, Laugarnesskirkju, Siglufjarðarldrkju, Sel-
osskirkju o. fl. Af stórum kirkjum, sem nú er verið að reisa, má
nefna Skálholtskirkju, Hallgrímskirkju í Reykjavík, Hallgríms-
. *r íu * ^aurbæ á Hvalfjarðarströnd, Neskirkju í Reykjavík, Sval-
, lrk)u a Svalbarðsströnd o. fl., sem skemmra eru á veg
komnar.
Það
eftir 9 aldir
ei vissulega mikið fagnaðarefni, að við skulum nú loks
vera byrjaðir á því að reisa fagrar og vandaðar kirkj-
ui ur \ aranlegu efni, og verður væntanlega svo fram haldið um