Kirkjuritið - 01.01.1957, Síða 36

Kirkjuritið - 01.01.1957, Síða 36
f KANTftRBBORC Á meðan við hjónin dvöldum í London í sumar, ákváðum við einn dag að gera för okkar til Kantaraborgar að hætti hundruð þúsunda af pílagrímum, sem þangað hafa lagt leið sína. Borgin liggur í héraðinu Kent í suðaustur Englandi, og leiðina frá Lond- on má fara á hér um bil þremur stundum í almenningsvagni. Á þessum slóðum er ákaflega fagurt og búsældarlegt. Héruðin Kent og Surrey eru stundum kölluð aldingarður Englands og eru það orð að sönnu. Þama skiptast á lágir hálsar og hæðir og frið- samir dalir með lygnum smáám, sem liðast um dalbotninn. Allt er landið vafið gróðri, aldintrjám og ökrum. Mest ber á kirsuberjatrénu í Kent. Kirsuberjaekrurnar eru þar svo víðlend- ar, að margir búgarðar eiga tugi hektara af þeim. Við vorum þama því miður ekki að vorlagi, þegar kirsuberjatréð blómgast. En mér var sagt, að það væri ógleymanlega fögur sjón, þegar þau standa í mjallhvítum skrúða sinna angandi blóma. Og þegar á líður og blómin þroskast, snjóar hvítum blómum yfir vegi og stíga í sunnangolunni. En þessi dýrð var hjá liðin, þegar við vor- um þarna á ferð, og berin voru byrjuð að blána. Þegar nær dregur sjónum, verður landið flatt, og frá Kantaraborg eru að- eins rúmir 60 km niður að ströndinni. Borgin liggur í grunnu dalverpi á báðum bökkum lítillar ár, sem heitir Stour. Hún er fremur lítil, íbúatala rúmlega 30 þús. En hún er mjög sérkenni- leg og fögur. Og hún er umvafin erfðavenjum og söguhelgi um- fram nokkra aðra borg á Bretlandi. Byggingarnar eru langflestar fornar, lýsa tækni, smekk og lífsháttum liðinna kynslóða. Þarna mætir maður andblæ genginna alda, og það hefir verið mælt, að sá, er vildi kynnast sál Englands, yrði að fara til Kantaraborgar. Ég held, að þetta sé að einhverju leyti sannmæli. Kantaraborg er fyrst og fremst gömul borg, sáralítið breytt að vtra útliti síðan á miðöldum.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.