Kirkjuritið - 01.01.1957, Síða 38
32
KIRKJUKITIÐ
byggt 1375—1381, rammgert með háum turnum. Og þó mun-
aði ekki hársbreidd, að það væri brotið niður árið 1850. Við
Vesturlilið eru unaðslegir og friðsælir skrúðgarðar, ein höfuð-
prýði borgarinnar.
En yfir alla borgina og allt, sem þar er að sjá, gnæfir Kantara-
borgar dómkirkja. Það er talið, að hún sé elzta guðshús Eng-
lands, og hún er móðurkirkja allra enskra kirkna, allrar hinnar
ensku kirkju, með öllu sínu óvenjulega starfi úti um víða veröld.
Erkibiskup Bretlands hefir setið í Kantaraborg frá því er kristni
hófst í Englandi. Öldum saman hefir hann og átt bústað í Lund-
únum í Lambethhöll á syðri Themsárbakka, og dvelur þar
löngum, því að hann á sæti á þingi Bretlands og í ríkisráði. En
Kantaraborg er heimkynni hans og embættissetur og hefir ver-
ið alla tíð.
Dómkirkjan í Kantaraborg er geysimikið hús í rómönskum,
normanniskum og forngotneskum stíl, og hefir verið í smíðum
í margar aldir, þangað til liún hlaut sína núverandi mynd. En
þessar stíltegundir hafa verið felldar saman af slíkri snilli og
byggingarfræðilegri kunnáttu, að allt orkar samræmilega á aug-
að. Af þeim hundruðum súlna, sem bera uppi hin miklu hvolf-
þök kirkjunnar, er nálega engin eins, en þetta ósamræmi orkar
einhvern veginn lifandi á mann, eins og mismunur trjáa í skógi.
Kirkjan er óvenjulega björt, og er þó myndagler litað í mjög
mörgum gluggum hennar, sumt frá blómatíma glermyndagerð-
arlistarinnar og dýrara en virt verði til fjár. A styrjaldarárunum
síðari var allt þetta gler tekið úr gluggunum, hundruð þús-
unda af þessum smáu, lituðu glerreitum tekið úr blýumgerðum
sínum, númerað, og geymt á öruggum stað. Það er ekki fyllilega
búið að koma því í samt lag.
Það tekur kunnáttumenn mörg ár. En fegurð þessarra glugga
er óviðjafnanleg. Þar blasa hinar heilögu ritningar við augum
í einfaldri, auðmjúkri tjáningu gleymdra og genginna meistara.
Annars fékk kirkjan sitt endanlega og núverandi snið á 15. öld,
og telst nú ein hin fegursta og stórfenglegasta í Englandi. Það,
sem einkum vekur geðþekka athygli, er það, hvað hún er björt
því að það er oft svo um þessi gömlu voldugu musteri, að þau