Kirkjuritið - 01.01.1957, Page 45

Kirkjuritið - 01.01.1957, Page 45
BÆNIR, SEM BÖRNIN LÆRA UTANAÐ 39 urðu útundan, svo að á síðustu árum hefir jafnvel verið talið, að nálega helmingur allra barna kynni ekki einu sinni Faðirvorið, og sama mun vera urn bænimar, þær sem þau áður höfðu lært utanað. Fullorðna fólkið kann þær ekki. Það hefir brostið hlekkur á milli fortíðar og nútíðar, sem enn er óbættur. Sumir menn munu í liugsunarleysi segja, að þama sé lítils í misst. En ureiðanlega er það ekki svo. Því verður ekki með rökum neitað, að þegar hörmungar og alls kyns áþján þjakar fólkinu, kjarkurinn er þrotinn, og allt sýnist vonlaust, þá er gripið til bænarinnar. Og fyrir mátt hennar fá menn kraft til að sigrast á erfiðleikum, sem annars virðast óyfirstígan- legir mannlegu þreki, og jafnvel vaxa við hverja raun. Að viðurkenna ekki þessa staðreynd er að berja höfðinu við steininn. Þessum orðum mínum til stuðnings, ætla ég að vitna lítilsháttar á ljóð- niæli Gríms Thomsen. Eitt kvæðið þar heitir Jólanóttin á Hafnarskeiði: ^ irðist það öðmm þræði máske skop, þar sem lýst er þeirri ofboðslegu 'ræðslu, sem getur gripið ölvaða menn. En efnið er það, að drukkinn mað- |'r er ‘I lerð til kvöldsöngs að Strandarkirkju á aðfangadagskvöld jóla. Hann reppir óveður og leggst fyrir. En sandbylurinn geisar, og honum finnst eHs konar óvættir riða gandreið í kringum sig. En þó tekur út fyrir allt, i’egar hann vaknar við klukknahringingu: Til dómsins hélt ég hringt að væri, liræddur iðrunar hinzta tók ég tækifæri, táraðist ég þar; að fyrirgefnar skyldu skuldir, skjálfandi ég bað, og þar beztu bænir þuldi, sem börnin læra utanað. Einnig má minna á kvæðið Skúla fógeta. Það er í fjórtándu ferð Skúla ni'Hi landa. Skipið lendir í fánáðri og ósjó. Segl em rifin, rár brotnar, og ipið er orðið hálffullt af sjó, en fjómm hásetum skolaði útbyrðis. Þeir eni iýndir í ólgandi hafið. En hinir leggjast í búlka á bæn, þó bænahald sé þeim ei tamast; skipstjórinn æðrast, en grenjandi græn gjálpin á súðinni hamast.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.